RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. kynna: Skemmtileg 4ra herbergja hæð með aukaíbúð í bílskúr í fallegu þríbýli við Skipasund 55 í Reykjavík. Sjón er sögu ríkari. ** VINSAMLEGAST SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í OPIÐ HÚS miðvikudaginn 21.febrúar nk. **** SMELLIÐ HÉR til að fá SÖLUYFIRLIT sent samstundis **Eigni... Sýna meira
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. kynna: Skemmtileg 4ra herbergja hæð með aukaíbúð í bílskúr í fallegu þríbýli við Skipasund 55 í Reykjavík. Sjón er sögu ríkari. ** VINSAMLEGAST SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í OPIÐ HÚS miðvikudaginn 21.febrúar nk. **** SMELLIÐ HÉR til að fá SÖLUYFIRLIT sent samstundis **Eignin er skráð 112,4 m² hjá Þjóðskrá og samanstendur af eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, bílskúr (27,8m²) og góðum sameiginlegum garði.** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÆÐINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**** SMELLTU HÉR og skoðaðu BÍLSKÚR / ÍBÚÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi.**Nánari lýsing eignarAndyri: Gengið inn um sameiginlegan inngang (með risíbúð) og þaðan beint inn í íbúðina. Hol: Gengið inn í rúmgott hol sem leiðir inn í allar vistarverur og alrými. Fataskápur og parket á gólfi. Alrými: Í eldhúsi er vönduð viðar innrétting. Tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi. Björt stofa/borðstofa með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgóðir fataskápar og parket á gólfi.Herbergi I: Parket á gólfi. Herbergi II: Parket á gólfi. Baðherbergi: Nýlega uppgert. Flísalagt gólf og veggur með rúmgóðri walk-in sturtu, handklæðaofni, salerni og vaskaskáp með skúffum ásamt speglaskáp með góðu geymsluplássi.Þvottahús: Sameiginlegt snyrtilegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara.Geymsla: Er í sameign og er 6,1 m². Geymsla undir tröppum er sameign og notuð fyrir garðáhöld. Bílskúr / Íbúð: Er rúmgóður og telur 27,8 m². Skúrinn er innréttaður sem íbúð og er í útleigu. Leigusamningur í gildi sem kaupandi tekur yfir. Skipta þarf um klæðningu á suðurhlið bílskúrs. Góð bílastæði eru fyrir framan skúrinn (langt bílastæði) sem er í eigu íbúðar. Við hlið bílastæðis er göngustígur frá tröppum og út á götu og hefur hann verið nýttur sem bílastæði annara íbúa.. Þó er sú notkun háð samþykki allra íbúa eins og á við um sameign almennt. Garður: Garðurinn umlýkur allt húsið og að framanverðu er sólrík hellulögð verönd með skjólgirðingu að hluta,Húsið var byggt árið 1950 og er vandað timburhús í góðu ástandi sem hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina.Viðhald innan og utan á undanförnum árum: 2023 - Suðurgluggi í stofu endurnýjaður. Gert var við leka á bílskúrsþaki og er þörf á smávægilegri lagfæringu loftaþilja innandyra eftir þann leka. 2022 - Allt húsið var málað að utan ásamt gluggum. 2021 - Baðherbergi endurnýjað frá A-Ö. Epoxý sett á gólf í þvottahúsi og þurrkherbergi.2020 - Skipt um járn á þaki. Múrviðgerð á útidyratröppum.2016 - Nýtt parket sett á íbúð. Stigagangur niður í þvottahús teppalagður.2008 - Eldhús fært inn í stofu og neysluvatnslagnir í eldhúsi endurnýjaðar.2007 - Skipt að hluta til um gler, Ný frárennslislögn og frárennsli undir húsi og út í götu.2005 - Bílskúrinn hækkaður og þakjárn endurnýjað. Húsið stendur inn í gróinni lóð sem er vel viðhaldið. Hér er um að ræða virkilega vel staðsetta og sjarmerandi eign í þessu gróna og rólega hverfi í Sundahverfinu og í mjög þægilegu göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði. Sjón er sögu ríkari. Allar nánari upplýsingar veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 á milli kl. 10:00 og 17:00 alla virka daga eða á netfanginu Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk__________________________Ertu í fasteignahugleiðingum? Ég kíki til þín í spjall!Ég hef starfað við fasteignasölu síðan árið 2016 þegar ég hóf nám til löggildingar fasteignasala við Háskóla Íslands.Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.Hafðu samband í dag í síma 774-1477 eða á netfangið