Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 137,7fm 4 herbergja endaíbúð með aukinni lofthæð og gluggum í allar áttir á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi, byggt árið 2015 að Skerjabraut 1, 170 Seltjarnarnes. Húsið er teiknað af T.ark arkitektum. Eignin er upprunalega ... Sýna meira
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 137,7fm 4 herbergja endaíbúð með aukinni lofthæð og gluggum í allar áttir á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi, byggt árið 2015 að Skerjabraut 1, 170 Seltjarnarnes. Húsið er teiknað af T.ark arkitektum. Eignin er upprunalega teiknuð sem 5 herbergja (4 svefnherbergi). Auðvelt að breyta aftur eins og upprunalegar teikningar gera ráð fyrir og vera þá með 4 svefnherbergi. Falleg og rúmgóð rými með stórum gluggum einkenna íbúðina. Vandaðar innréttingar og tæki ásamt afar fallegu viðarparketi lagt með fiskibeinamunstri sem setur glæsilegan svip á íbúðina. Eignin skiptist í anddyri með innbyggðum fataskáp, þvottahús, bókastofa, mjög rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi, 2 mjög rúmgóð svefnherbergi með skápum, baðherbergi með sturtu og sérgeymslu í kjallara. Frábær staðsetning á með nærþjónustu bæði Seltjarnarnesbæjar og Vesturbæjarins í göngufjarlægð. Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða Eignin Skerjabraut 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-1428, birt stærð 137.7 fm, þar af er geymsla merkt 0014 skráð 8,5fm.Nánari lýsing:Anddyri: Komið inn í anddyri. Innbyggður fataskápur í holi.Þvottahús: Inn af anddyri. Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, útdraganlega skúffur undir og skápar fyrir ofan vélar. Ræstivaskur og upphengdur tvöfaldur skápur. Bókastofa: Upprunalega teiknað sem herbergi. Opið og bjart rými sem er í dag nýtt sem bókastofa.Alrými: Fallegt, opið, rúmgott og bjart alrými með samliggjandi borðstofu, stofu og eldhúsi með eyju.Stofa / Borðtofa: Opið við eldhús. Afar rúmgott og fallegar samliggjandi stofur. Útgengt út á rúmgóðar svalir.Eldhús: Falleg ljós innrétting með góðu skápaplássi og stórri eyju með aðstöðu fyrir barstóla. Marmari á eldhúsbekk og eyju. Vönduð tæki frá Eirvík. Ofn frá Miele í vinnuhæð, innfellt spanhelluborð frá Miele í eyju, innbyggð uppþvottavél frá Fisher & Paykel og innbyggður ísskápur frá Liebherr. Hol: Innaf stofu. Tengir saman herbergi, baðherbergi og stofu. Nýtt í dag sem vinnuaðstaða.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innangeng sturta með glervegg. Handklæðaofn.Svefnherbergi I: Afar rúmgott. Upphaflega teiknað sem tvö herbergi. Tvöfaldur fataskápur.Svefnherbergi II: Afar rúmgott með mjög góðu skápaplássi.Geymsla: Sér geymsla í kjallara, 8,5fm.Gólfefni: Vandað og afar fallegt viðarparket lagt með fiskibeinamunstri á allri íbúðinni að undanskyldu baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð.Sameign: Í sameigninni sameiginlegt þvottahúsi þar sem hver íbúð er með sitt tengi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla.Bílaplan: Næg bílastæði á sameiginlegu bílaplani Skerjabrautar 1 & 3. Tvö rafhleðslustæði á bílaplani.Falleg eign í nýlegu lyftuhúsi í grónu og eftirsóttu hverfi á Seltjarnarnesi. Fjölbreytt verslun og þjónusta í göngufjarlægð ásamt sundlaug Seltjarnarnes, líkamsrækt og íþróttasvæði Gróttu. Þá er einnig stutt í alla nærþjónustu Vesturbæjar eins og sundlaugina, KR völlinn, Kaffi Vest, Melabúðina og svo mætti lengi áfram telja. Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur .Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.