Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna stórglæsilega fimm herbergja þakíbúð með einstaklega rúmgóðum þaksvölum, með heitum potti, hellulagðri stétt og grasi að hluta. Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara sem staðsett eru á besta stað, næst inngangi inn í húsið. Birt stærð skv. faste... Sýna meira
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna stórglæsilega fimm herbergja þakíbúð með einstaklega rúmgóðum þaksvölum, með heitum potti, hellulagðri stétt og grasi að hluta. Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara sem staðsett eru á besta stað, næst inngangi inn í húsið. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 145,1 m2.Einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Íbúðin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, eldhús opið við borðstofu / stofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús. Mjög rúmgóðar þaksvalir. Fallegt harðparket er á öllum rýmum nema votrýmum. Byggingaraðili hússins er ÞG verktakar. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápar eru frá GKS ehf. Lyklalaust aðgengi er í húsinu. Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Tyrfð / hellulögð sameiginleg baklóð með leiktækjum, göngustígum og kvöldlýsingu.Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík.Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi.ATH! Dýrahald er leyft í húsinu. Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með góðum fataskápum.Alrými: Eldhús borðstofa og stofa eru í opnu rými. Þaðan er útgengt á einstaklega rúmgóðar þaksvalir.Eldhús: Í eldhúsi er falleg ljós innrétting með eyju. Quarts borðplata, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð.Stofa/ borðstofa: Rúmgott, fallegt og bjart rými, gluggar á þrjá vegu. Útgengt á glæsilegar þaksvalir.Hjónaherbergi : Mjög rúmgott og bjart herbergi með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Svefnherbergi 2: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp sem nær upp í loft.Svefnherbergi 3: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp sem nær upp í loft.Svefnherbergi 4: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp sem nær upp í loft. Baðherbergi: Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta. Mjög rúmgóð innrétting, speglaskápar á vegg, "walk in sturta" með glerskilrúmi og handklæðaofn. Vegghengt salerni.Þvottahús: Þvottahús er með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hillur á vegg.Þaksvalir: Einstaklega rúmgóðar 205 m2 þaksvalir með heitum potti ( hitaveitupottur). Gólfið er hellulagt að hluta með vönduðum útiflísum frá Vídd.Bílastæði: Tvö bílastæði fylgja íbúðinni í lokuðum bílakjallara. Staðsetning þeirra er afar góð alveg við inngang hússins. Búið er að leggja fyrir rafhleðslu í bílastæðum. Geymsla: Mjög rúmgóð geymsla er í sameign sem staðsett er næst inngangi á geymslugangi. Hjóla og vagnageymsla er einnig í sameign.Djúpgámar fyrir sorp. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.