Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgott 182fm parhús innarlega í botnlangagötu við Sjafnarvelli 15 í Keflavík. Stutt er bæði í leik- og grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Húsið hefur verönd bæði fyrir framan hús og aftan ásamt heitum og köldum potti.
* Þakjárn endurnýjað - 2024
* Nýtt harðparket á neðri hæð - 2022
* Ný borðplata og helluborð í eldhúsi - 2022
* Nýr pallur í bakgarði, heitur og kaldur pottur - 2022
* Flestir rafmagnstenglar og ljósrofar endurnýjaðir - 2025
* Pallur málaður að framan - 2025
* Þarf að skipta um 2-3 glugga í eigninni en allir gluggar og útihurðir á jarðhæð voru málaðir 2025. Lýsing neðri hæðar:
Forstofa: Vatnsþolið harðparket á gólfi, rúmgóður forstofuskápur.
Eldhús: Upprunaleg innrétting sem var nýlega máluð, borðplötu og helluborði var skipt út árið 2022. Ný uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni.
Stofa/borðstofa: Bjart opið rými með harðparketi á gólfi, innfelldri led-lýsingu og gólfsíðum gluggum. Frá stofu er gengið út á verönd.
Sjónvarpshol: Harðparket á gólfi og stigi upp á aðra hæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi á gólfi, góður fataskápur.
Baðherbergi: Endurgert í mars 2026. Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, baðkar og upphengt salerni.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Innangengt er í
bílskúr.
Bílskúr er með flísum á gólfi og bílskúrshurð með rafmagnsopnara ásamt eins fasa hleðslustöð. Gengið er í þvottahús úr bílskúr.
Þvottahús: Flísar á gólfi, vaskur og mikið skápapláss. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í innréttingu. Gengið er út á baklóð úr þvottahúsi.
Nánari lýsing efri hæðar:
Salerni: Flísar á gólfi, innrétting með handlaug, salerni og sturta.
Herbergi: Með parketi á gólfi og skáp undir súð.
Herbergi: Með parketi á gólfi og skáp ásamt innangengri geymslu undir súð.
Skápar með miklu geymsluplássi undir súð.
Stór og góður bakgarður, 14,9m2 kofi er á baklóð frá Kofar og hús, rafmagn er í geymsluskúr. Steyptar súlur undir, 6 tommu þykkar yleiningar og pallur.
Pallur var stækkaður árið 2022 og settur heitur og kaldur pottur. Einnig eru lagnir til staðar fyrir útisturtu eða vatn fyrir sturtu/sauna í útiskúr.
Innkeyrsla við bílskúr og gangstétt er upphituð með frárennsli hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
brynjar@studlaberg.is