Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt 6-7 herbergja endaraðhús við Sjafnarbrunn 4, 113 Reykjavík. Eignin telur anddyri, stofu, eldhús, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpshol (hægt að breyta í sjötta svefnherbergið), geymslu, þvottahús og bílskúr. Tvennar svalir og rúmgóður viðarpallur út frá stofu sem snýr til suður-suðvesturs. Heitur pottur á palli og gólfhiti í öllu húsinu.Virkilega falleg og björt eign þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttasvæði Fram í göngufæri ásamt fallegum nátturúperlum. Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.Nánari lýsing eignarinnar: Eignin er skráð samtals 241,4 fm á þremur pöllum/hæðum og er íbúðarrými skráð 209,8 fm og bílskúr 31.6 fm. Aukin lofthæð á efri hæð og neðri hæð. Fyrsta hæð:Anddyri: Dökkar flísar á gólfi. Innangengt inn í bílskúr.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp. Ljóst harðparket á gólfi.
Baðherbergi I: Walk in sturta, ljós innrétting, speglaskápur fyrir ofan vask. Flísalagt í hólf og gólf.
Stigi/stigagangur: Stigi niður á neðri hæð er með fallegu svörtu stálhandriði og gegnheilu viðarparketi. Stigi upp á efri hæð er teppalagður og með nýlegu stálhandriði frá JSÓ.
Neðri hæð: Mikil lofthæð, björt og falleg með gegnheilu viðarparketi. Gólfsíðar gardínur fylgja ásamt tveimur vínkælum, ísskáp og uppþvottavél. Eldhús: Nýleg falleg U-laga dökk dröppuð innrétting með akrílstein frá Svansverk. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Tveir bakaraofnar í vinnuhæð. Mjög gott skápapláss með búrskáp. Gegnheilt viðarparket á gólfi og mikil lofthæð. Eldhús og stofa/borðstofa eru samtengd.
Stofa/borðstofa: Mjög björt með mikilli lofthæð. Gólfsíðir gluggar og útgengt á pall til suður-suðvesturs með hitaveitupotti. Vínkælir undir stiga fylgir. Geymslurými bakvið vínkælir undir stiga.
Efri hæð: Aukin lofthæð og sérsmíðaðar hvítar innihurðar. Viðarlitað harðparket á á gólfi í öllum rýmum nema baðherbergi og þvottahúsi.Svefnherbergi með fataherbergi II: Fallegt og rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi. Viðarlitað harðparket á gólfi og útgengt á svalir til norð-austurs.
Svefnherbergi III: Rúmgott barnaherbergi með fataskáp. Viðarlitað harðparket á gólfi. Athuga ber að herberginu hefur verið breytt frá upprunalegri teikningu en það var stækkað í stað þess að hafa þriðja baðherbbergið. Það býður því upp á þann möguleika að að bæta við baðherbergi og minnka barnaherbergið.
Baðherbergi: II: Stórt baðkar, fallegar nýlegar hvítar og viðarlitðarar innréttingar, tvær handlaugar, handklæðaofn, upphengt wc og flísar á gólfi.
Sjónvarpshol: Stórir gluggar og útgengt á svalir til suð-vesturs. Möguleiki er að bæta við sjötta svefnherberginu.
Svefnherbergi IV: Rúmgott barnaherbergi með fataskáp. Viðarlitað harðparket á gólfi.
Svefnherbergi V: Rúmgott barnaherbergi með fataskáp. Viðarlitað harðparket á gólfi.
Þvottahús: Nýleg hvít innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur, flísar á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: Rúmgóð geymsla sem er í dag notuð sem skrifstofa.
Bílskúr: Innangengt úr anddyri og útgengt úr bílskúr. Er með vinnnuvaski, lökkuðu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð.
Vatnið í húsinu er forhitað og snjóbræðslukerfi í stétt fyrir framan hús.
Endurbætur sem hafa átt sér stað á síðustu tveimur árum að sögn seljanda:Nýjar innréttingar í eldhúsi, nni á baðherbergjum og í þvottaúsinu ásamt borðplötum.
Nýjir skápar inni í fataherbergi og lokað inn á baðherbergi en það var áður innangengt úr fataherbergi.
Allt málað.
Ný handriði í stiga.
Gólf inni í bílskúr málað og settur vinnuvaskur.
Bætt við sorptunnuskýli og eru því þrjú í dag.
Lagt var torf í garðinn sunnanmeginn við húsið.
Samkvæmt eldri sölugögnum var húsið málað og steypuviðgert árið 2022.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.