-Vegna mikils áhuga erum við með kaupendur á skrá í leit að sambærilegri eign-Gimli fasteignasala kynnir: Vandaða þriggja herbergja íbúð á tveimur hæðum við Seljabraut í Reykjavík. Allur frágangur á eigninni er vandaður, nýlegt eldhús með fallegum steini á borðum, nýlegt baðherbergi, innbyggðir skáp... Sýna meira
-Vegna mikils áhuga erum við með kaupendur á skrá í leit að sambærilegri eign-Gimli fasteignasala kynnir: Vandaða þriggja herbergja íbúð á tveimur hæðum við Seljabraut í Reykjavík. Allur frágangur á eigninni er vandaður, nýlegt eldhús með fallegum steini á borðum, nýlegt baðherbergi, innbyggðir skápar, veglegur frágangur á stiga og sjónvapsholi. Fallegt útsýni er til norð-vesturs og austurs. Eigninni fylgir stórt bílskýli í lokaðri bílageymslu og geymsla. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá 97,6 fm, þar af er íbúð á hæð 67,4 fm og bílskúr 30,2 fm, óskráð rými eru geymsla u.þ.b. 6 fm og efri hæð/loft u.þ.b. 29 fm Í heild er eignin því um 132 fm. Eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 792-7576, eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, NÁNARI LÝSING: Gengið er inn í íbúðina, sem er á fjórðu hæð, um snyrtilega sameign á gang með innbyggðum fataskáp. Af ganginum er á vinstri hönd gengið inn í rúmgott herbergi með góðum skáp og stórum glugga. Af ganginum er svo gott flæði inn í eldhús og stofu. Baðherbergið er aðgengilegt úr aðalrými og er mjög rúmgott, inn af baðherbergi er þvottahús og geymsla, að hluta undir súð. Úr alrými er veglegur stigi upp á loft sem samanstendur af sjónvarpsholi og svefnherbergi með innbyggðum skápum. Inn af svefnherbergi er geymsla undir súð.Í kjallara er stórt bílskýli innan bílageymslu og sér geymsla auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu.Niðurlag: Góð eign sem er mikið endurnýjuð með vönduðum frágangi.Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, aðstoðamaður fasteignasala, sími 792-7576, Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.