Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna til sölu:Björt og falleg 90,2fm. íbúð við Rofabæ 45, 110 Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað í Árbænum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð.
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í opið forstofuhol með fatahengi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, björt og opin stofa sem býður uppá ýmsa möguleika. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús: Rúmgott eldhús með borðkrók, eldhúsið er opið í tvo enda. Innrétting með miklu skúffu- og skápaplássi, flísalagt milli innréttinga. Blástursofn, spanhelluborð, uppþvottavél og ísskápur.
Svefnherbergi I & II: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum ásamt góðu barnaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu, upphengt salerni og baðinnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél.
Geymsla: Á jarðhæð hússins er 4,6fm. geymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Garður: Framan við húsið er stór og snyrtilegur garður með skemmtilegum leikvelli fyrir börn ásamt fótbolta- / körfuboltavelli.
Húsið hefur fengið mikla yfirhalningu á síðustu árum:
2017-2018:
- Þak yfirfarið og skipt var um þakjárn og járnrennur.
- Gluggum skipt út á austur- og suðurhlið að undanskildum gluggum sem eru inni á svölum.
- Múrviðgerðir á norður- og vesturhlið hússins ásamt málun.
- Sameiginlegri rafmagnstöflu í Rofabæ 45 skipt út. Settir nýjir dyrasímar ásamt ljósaskynjurum.
- Nýjir póstkassar.
- Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
- Sameiginlegt leik- og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.
2023-2024
- Svalir rifnar niður og endursteyptar
- Sett upp nýtt svalahandrið með álprófílum og hertu gleri.
- Suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum.
- Svalahurðum skipt út og gluggum sem eru inni á svölunum.
Eignin er vel staðsett og stutt í helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, íþróttaaðstöðu og fleira.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma
693 9258 eða
jonoskar@landmark.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat