RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu nýtt og glæsilegt endaraðhús á frábærum stað við Rökkvatjörn 10, í Úlfarsárdal. Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að utan og með álklæðningu.
Húsið skilast fullbúið að innan með vönduðum frágangi.✅ Bjart og vel skipulagt hús
✅ 4 rúmgóð herbergi - möguleiki að bæta við herbergi í bílskúrnum.
✅ Vandaður frágangur:
⭐️ Fallegar innréttingar frá Nobilia - GKS
⭐️ Steinborðplötur frá REIN - Innfelld lýsing
⭐️ Gólfhiti og sérstakt loftskiptikerfi fyrir húsið
⭐️ Pledj snjalllýsing
Húsið skiptist með eftirfarandi hætti: Forstofa, stofa/alrými, eldhús, gestasnyrting, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsstofa, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 205 fm, þar af er íbúðarrýmið 171 fm og bílskúrinn 34 fm.
⭐️
Kíktu í heimsókn, skoðaðu húsið í 3D ⭐️
Nánari lýsing:Neðri hæð:
Forstofa: Innangengt í bílskúrinn frá rýminu.
Stofa/alrými: Bjart og rúmgott rými með gólfsíðum gluggum. Rennihurð og gönguhurð út í garð.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Nobilia, steinborðplata, bakaraofn í vinnuhæð, AEG helluborð með innbyggðum gufugleypi og innbyggð uppþvottavél frá AEG. Gluggi í rýminu.
Gestasnyrting: Baðinnrétting með vask og steinborðplötu. Spegill með baklýsingu. Upphengt salerni.
Bílskúr: 34 fm. Stór gluggi í enda bílskúrsins. Möguleiki að bæta við herbergi. Gólfefni í bílskúr verður epoxyl.
Efri hæð:Stigagangur: Teppalagður stigi með led-lýsingu. Geymslurými undir stiganum.
Sjónvarpsstofa: Staðsett í holi efri hæðar. Djúp gluggakista með leðursessu. Frá holinu er útgengt út 10,9 fm flísalagaðar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi. Djúp gluggakista með leðursessu.
3 barnaherbergi: Fín stærð á herbergjunum. Rennihurð inn í eitt herbergið.
Baðhergi: Falleg baðinnrétting með steinborðplötu og góðu skápaplássi. Sturtuklefi með glerþil, led-lýsing í sturtuklefanum. Handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Góð innrétting utan um þvottavél og þurrkara. Gott skápapláss. Vinnuborð með vaski.
Lóð: Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu. Þrefalt sorptunnuskýli og búið að reisa skjólvegg á lóð. Timburskjólveggur kominn upp. Lóð tilbúin undir timburverönd / gras. Á baklóð hússins er gert ráð fyrir heitum potti. Búið er að legga ídráttarrör fyrir mögulega tengingu á heitum potti. Einnig er búið að leggja frárennslislögn að væntanlegu pottastæði. Búið er að leggja ídráttarör fyrir viðbótarhleðslustöð við sorptunnuskýli.
**ATH. Húsið verður afhent með fataskápum í forstofu hússins og svefnherbergjum. Fataskápar verða settir upp í samráði við kaupendur.Helstu kostir við frágang:** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar Rationel ál-tré.
** Gólfsíðir gluggar veita mikla birtu inn í rými neðri hæðar. Gólfhiti í öllum rýmum hússins.
** Fallegar innréttingar frá GKS. Steinborðplötu. Innfelld lýsing. Sérstakt loftskiptikerfi.
Byggingaraðili: Eiríkur og Einar Valur ehf.
Arkitekt: Einar Ólafsson, ARKITEO
Verkfræðihönnun: Vignir Jónsson, S.SAGA ehf.
Raflagnahönnun: Baldvin Ó. Gunnarsson, Voltorka ehf
Verktakafyrirtækið Eiríkur og Einar Valur ehf. hefur áralanga reynslu af framkvæmdum fyrir opinbera aðila, stórfyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum til fjölda ára. Fyrirtækið leggur áherslu á vandað húsnæði. Fyrirtækið býr yfir 50 ára reynslu á byggingarmarkaði.Umhverfið:Úlfarsárdalur er vinsælt og fjölskylduvænt hverfi í Reykjavík þar sem náttúra og þægindi fara saman. Stutt er í leik- og grunnskóla, þar á meðal Dalskóli, auk fjölbreyttrar íþróttaaðstöðu hjá Fram. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um svæðið og tengjast meðal annars Úlfarsfell, sem býður upp á frábært útsýni og útivist.
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir.
Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason // lögmaður / löggiltur fasteignasali // E-mail: thorsteinn@remax.is // Sími: 696-0226