EIGNI ER SELD - OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI FIMMTUDAGINN 25. MARS kl. 17.30 FELLUR ÞVÍ NIÐUR.Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 3 hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Engjahverfi. Eignin er samkvæm... Sýna meira
EIGNI ER SELD - OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI FIMMTUDAGINN 25. MARS kl. 17.30 FELLUR ÞVÍ NIÐUR.Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 3 hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Engjahverfi. Eignin er samkvæmt fasteignaskrá 81,3 fm. þ.a. er íbúðarhluti 76,6 fm. og geymsla 4,7 fm. Mjög góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll og verslunarmiðstöðina Spöngina. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús, geymslu sem staðsett er í sameign og sameiginleg vagna- og hjólageymslu. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing eignar: Forstofa: Með hvítum fataskáp og flísum á gólfi.Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi út á 5,6 fm. suðvestursvalir, plastflísar á svalargólfi, parket á gólfi.Eldhús: Með fallegri brúnni/hvítri innréttingu, hvítur bökunarofn, innfelld uppþvottavél, gamalt spanhelluborð, parket á gólfi. Endurnýjað 2020.Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með hvítum skápum, parket á gólfi. Barnaherbergi: Gott barnaherbergi með hvítum fataskáp, parket á gólfi.Baðherbergi/þvottahús: Með góðri innréttingu, speglaskápur, baðker, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, hvítar flísar á vegg í sturtu og svartar flísar á gólfi. Baðherbergið var endurnýjað að hluta 2017 og þvottahús innrétting 2020.Geymsla / vagna og hjólageymsla: Á jarðhæð í suðurenda hússins er 4,7 fm. sérgeymsla og í norðurenda hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Garður: Framan við húsið er hellulögð stétt, malbikuð bílastæði, sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni, gróinn sameiginlegur garður er umhverfis húsið. Húsið: Húsið hefur fengið gott viðhald og var m.a. sprunguviðgert/málað og skipt um gluggar og gler 2017. Búið er að endurnýja íbúðina nokkuð að innan m.a.:* Eldhús endurnýjað þ.e. ný eldhúsinnrétting, bökunarofn, vaskur og blöndunartæki, spanhelluborðið er gamalt. * Baðherbergi endurnýjað að hluta þ.e. ný baðherbergisinnrétting, speglaskápur, vaskur og blöndunartæki, nýjar flísar á gólfi, ný þvottahúsinnrétting.* Nýr fataskápur í forstofu. * Parket nýtt.* Rafmagnsrofar og tenglar eru nýir.Frábær staðsetning þar sem örstutt er Borgaskóla, leikskólann Engjaborg, framhaldsskólann Borgarholtsskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðina Egilshöll, Korpúlfsstaðavöll og verslunarmiðstöðina Spöngina með allri sinni þjónustu. Einkenni hverfisins er mikil nánd við náttúruna. Þar má helst nefna svæði eins og Gufunesið, Grafarvoginn og ána Korpu. Hverfið markast einnig af langri og fallegri sjávarsíðu sem umlykur hverfið að stórum hluta. Falleg eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 3276 eða .----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.