Stórglæsileg 2ja herbergja íbúð á 5. hæð með tvennum svölum í Austurhöfn í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er laus strax, til afhendingar við kaupsamning. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins. Sérbílastæði fylgir íbúðinni. Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, ... Sýna meira
Stórglæsileg 2ja herbergja íbúð á 5. hæð með tvennum svölum í Austurhöfn í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er laus strax, til afhendingar við kaupsamning. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins. Sérbílastæði fylgir íbúðinni. Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, *** Sækja söluyfirlit *** Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 511 við Reykjastræti 7, 101 Reykjavík, F2369227. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 131,6 fm. Þar af er íbúðarrými skráð 113,3 fm og sérgeymsla er 18,3 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Tvennar svalir. Rúmgóð sérgeymsla er í kjallara hússins. Sérbílastæði í kjallara. Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu, hitastigi, gluggatjöldum o.fl. Húsgögn geta fylgt með. Anddyri er með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Fyrir framan íbúðina er rými sem ekki er inni í skráðri fermetratölu en getur nýst sem auka anddyri. Eldhús er með vandaðri spónlagðri innréttingu frá Gili Creations og stórri eldhúseyju. Kvarts steinborðplata við eldhúsvask en hvítur marmari á eldhúseyju. Eldhústæki af mjög vandaðri gerð frá Miele og Liebherr. Spanhelluborð, vifta í helluborði. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi. Stofa er rúmgóð og björt í alrými. Parket á gólfi. Útgengt er á tvennar svalir úr stofu, austursvalir með borgarútsýni á meðal annars Landsbankahúsið, Hörpu o.fl. og vestursvalir með útsýni yfir glæsilegan inngarð Austurhafnar.Svefnherbergi er mjög rúmgott og inn af því er fataherbergi með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Baðherbergi er með stórri, vandaðri innréttingu og speglaskápum. Walk-in sturta. Baðkar. Innbyggð blöndunartæki í sturtu, baðkari og við handlaug. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Flísar í hólf og gólf. Sérgeymsla (18,3 fm) er í kjallara hússins (á -2). Sérbílastæði (merkt á teikningu B-85) nr 511 er í kjallara hússins (á -2). Undir húsinu er einn stærsti bílakjallari landsins sem nær frá Hafnartorgi undir Reykjastræti og allt til Hörpunnar. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins. Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook