RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur við Rauðarárstíg. Íbúðin er björt í litlu fjölbýli sem hefur fengið gott viðhald.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 66,1fm. þar af er íbúðarrými 61,6fm. og sérgeymsla merkt 01 0301er 4,5fm.
- Tvö svefnherbergi
- Lítið fjölbýli við miðbæ Reykjavíkur.
- Vel við haldið hús, drenað, steinað og múrviðgert m.a.
- Vestur svalir með góðu útsýni.
Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing eignarinnar: Komið er inn í
hol með fatahengi.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá IKEA og flísum á milli skápa.
Stofan er rúmgóð með útgengi á svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi er með baðkari/sturtu og flísum á gólfi og hluta veggja.
Parket er á öllum gólflötum að undanskildu
baðherberginu sem er flísalagt.
Sameiginlegt
þvottahús er í risi ásamt sérgeymslu.
2016: Húsið var steinað að utan og einnig ýmsar múrviðgerðir og nýjar þakrennur.
2017/2018: Drenað, og lóð hellulögð að hluta.
2019: Nýr dyrasími.
Vel staðsett íbúð í miðbæ Reykjavíkur við alla þá þjónustu sem miðbærinn býður upp á, Miklatún, Sundhöllin, veitingastaðir, skólar og leikskólar. Eign sem vert er að skoða!Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.200 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-