Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstakt og spennandi tækifæri á Rauðalæk 52 í Laugardalnum. Um er að ræða 265,8 fm efri hæð og ris á þessum eftirsótta stað í Reykjavík, í göngufæri við Laugardalinn, Laugardalslaugina, verslanir og þjónustu. Hæðin og risið þarfnast endurbóta og búið er að gera ástandsskýrslu um það sem þarf að framkvæma utanhúss. Nýverið var skipt um þak á húsinu og hafa einhverjir gluggar verið endurnýjaðir.
Hér er því einstakt tækifæri til að eignast mjög stóra íbúð á frábærum stað og um leið gera hana upp eftir sínu höfði.
Samtals er íbúðin skráð 265,8 fm hjá HMS og er geymsla þar af 7,6 fm.
Íbúðin er með sex til sjö svefnherbergjum, tveim til þrem stofum, þrennum svölum, eldhúsi, búri, tveim baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Nánari lýsing eignar:Komið er inn um
sérinngang og er stigi þaðan upp á hæðina þar sem komið er upp í stórt og rúmgott
hol.
Á aðalhæðinni er
eldhús með upprunalegri innréttingu og á milli borðstofu og eldhúss er lítið
búr.
Stofa og borðstofa ásamt húsbóndaherbergi (merkt þannig á teikningu) snúa í suður og eru svalir út frá húsbóndaherbergi. Fallegur arinn er í dagstofunni og útgengt á svalir úr borðstofunni.
Á aðalhæðinni er eitt rúmgott
herbergi við hliðina á eldhúsinu.
Á móti herberginu er stórt og rúmgott
þvottahús.
Við stigann upp á rishæðina er
gestasnyrting.
Gengið er upp á rishæðina úr holi og þar eru
fimm rúmgóð
svefnherbergi ásamt
baðherbergi.
Gengið er út á stórar
svalir úr einu herbergjanna.
Á rishæðinni er lítil
geymsla við stigaopið niður á aðalhæðina.
Yfir rishæðinni er háaloft sem hægt er að nýta.
Í kjallara er sér
geymsla sem er skráð 7,6 fm.
Hægt er að leggja tveim bílum við húsið að framanverðu.
Hér er afar skemmtileg og einstök eign á ferðinni sem bíður upp á mikla möguleika. Sjaldgæft er að eignir á þessu svæði komi í sölu en enn sjaldgæfara að þær séu svona stórar og rúmgóðar. Búið er að gera ástandsmat á viðhaldsþörf utanhúss og er framkvæmdum við þak lokið skv. því en viðgerðir á steypu og steinun hússins eru eftir.Viðgerðaþörf: Kominn er m.a. tími á gluggaviðgerð á hluta glugga. Rafmagn þarfnast skoðunar/viðgerða. Skipta þarf um öll gólfefni. Þörf er á frekari endurbótum. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að skoða eignina vel og fá til þess sérfræðing í húsaskoðun og ástandsmati.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.