FIMM HERBERGJA BJÖRT OG FALLEG ÍBÚÐ Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ - 105 REYKJAVÍK.Samkvæmt skráningu HMS Fasteignaskrá er birt flatarmál eignarinnar 114,2 fm.Um er að ræða fallega íbúð á efstu hæð í steinsteyptu fjórbýlishúsi byggðu árið 1957. Gengið er inn í forstofugang sem aðskilur allar vistarverur íbúðarinnar, til hægri eru tvö herbergi og baðherbergið á milli í enda gangsins. Til vinstri er eitt herbergi, eldhúsið, stofa og borðstofa. Hægt er að ganga út á svalir úr borðstofunni, en í dag er borðstofan nýtt sem svefnherbergi. Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús og kyndiklefi, ásamt sér geymslu íbúðarinnar.
Forstofa/gangur: Teppalagður anddyris pallur er fyrir framan inngang íbúðarinnar, gangurinn liggur endilangt eftir íbúðinni með parketi á gólfi.
Eldhús: Falleg eldri innrétting með góðu skápaplássi. Mjög rúmgott og bjart rými og borðkrókur við glugga, parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Stofan er björt og rúmgóð með glugga í tvær áttir, borðstofan er við hlið hennar með útgangi út á suður svalir, parket á gólfum.
Svefnherbergin: Herbergin eru þrjú, öll rúmgóð og parketlögð, skemmtilegt gluggalaust innra herbergi er inn af einu herberginu.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu, innréttingar við handlaug, handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi.
Geymsla: Sér 4,6 fm. geymsla fylgir íbúðinni í kjallara.
Lóðin: Sameiginleg, stór og snyrtileg með grasbletti til suðurs og fallegum gróðri, afgirt að hluta. Sandkassi og trampólín á vegum húsfélagsins.
Að sögn eiganda hefur eigninni verið haldið vel við í gegnum árin: Þakið norðan megin hefur verið endurnýjað. Þakið sunnan megin var yfirfarið og málað sumarið 2025. Þakkantur hefur verið yfirfarinn og málaður. Allar svalir á húsinu voru endurnýjaðar á árunum 2020 - 2021. Búið er að endurnýja sameiginlegan stigagang, þ.e. mála og skipta um teppi.
- Ljósleiðari er komin inn í íbúðina.
- Inngangur er sameiginlegur með íbúðinni á 2. hæð.
Um er að ræða fallega íbúð í vinsælu fjölskylduhverfi, gott aðgengi er að strandlengjunni, Laugarnestanganum og Laugardal, göngu-, hjóla- og hlaupaleiðir, stutt er í leikvelli, leik- og grunnskóla, sundlaug og ýmissa þjónustu.Allar nánari uppl. og skoðun veitir:
Jóhann Friðgeir, lgf GSM: 896-3038 e-mail:
johann@hofdi.is