Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali, kynna:
Rauðagerði 56, 108 Reykjavík – glæsilegt og afar rúmgott einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr, samtals 311 fm. Um er að ræða
fjölskylduvæna og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.isNánari lýsing:Neðri hæð:Komið er inn um aðalinngang í rúmgott flísalagt anddyri með fataskáp.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, korkur á gólfi.
Þvottahús með nýrri innréttingu.
Sjónvarps/seturými með nýju gegnheilu parketi.
Baðherbergi með sturtu, handlaug, saunu og aðgengi út á verönd.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Aðgengi að bílskur inn af þvottahúsi.
Efri hæð:Á efri hæð er bjart og opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með góðri lofthæð.
Frá stofu er útgengt á svalir/pall.
Eldhús er vel skipulagt með flottu útsýni og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III er með dúk á gólfi.
Baðherbergi er upprunalegt, flísar að hluta ásamt viðarklæðningu.
Um er að ræða stórt og reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum með góðu skipulagi þar sem svefn- og samverurými eru vel aðskilin. Húsið býður upp á mikla möguleika fyrir stórar fjölskyldur eða þá sem vilja rúmgott heimili með sveigjanlegu rými.Staðsetning:Rauðagerði er rólegt og gróið hverfi í 108 Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Hverfið er vinsælt hjá fjölskyldum og þykir einstaklega barnvænt.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.