Esja fasteignasala og Þóra Birgisdóttir kynna bjarta og fallega, 3ja herbergja íbúð vel staðsetta miðsvæðis í borginni. Íbúðin er á 3.hæð (efstu hæð) með sérinngangi og bílskúr. Í göngufjarlægð eru leikskólar, skólar, heilsugæsla, verslanir, veitingastaðir, leikhús, Kringlan o.fl. Íbúðin er í litlu fjölbýlishúsi frá 1983, skráð 108 fm skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 86,8 fm og bílskúrinn 21,2 fm.
Skipting eignar: Forstofa/stigagangur innan íbúðar, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla. Bílskúrinn er staðsettur í enda í sérstæðri bílskúrslengju við
hlið hússins.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með sér stigagangi (nýlega teppalagður með fallegu og slitsterku teppi) sem leiðir mann upp í afar bjarta og opna íbúð. Til móts við stigagang er tvöfaldur innfelldur fataskápur. Eikarparket er á gólfum, nema á baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu rými. Útgengt á rúmgóðar s-vestur svalir með góðu útsýni. Opið er að hluta frá stofu yfir í eldhús. Inn af stofu er bjart og vel skipulagt eldhús með hvítri sprautulakkaðri og rúmgóðri innréttingu með efri skápum á einn vegg og glugga á annan.
Þvottahús og geymsla er í sama rými inn af eldhúsi. Þar er góð loftun, innrétting með skolvask og góð aðstaða fyrir þvottavél + þurrkara. Rýmið er rúmgott og nóg pláss til að setja upp hirslur.
Tvö herbergi eru í íbúðinni. Rúmgott hjónaherbergi með fjórföldum hvítum fataskáp sem nær upp í loft. Við hlið hjónaherbergis er rúmgott barnaherbergi. Fyrir framan herbergin er opið hol sem gæti nýst sem sjónvarpshol eða vinnuaðstaða.
Baðherbergið var endurnýjað 2012. Fallegar ljósar flísar eru á gólfi og veggjum. Innréttingin er með viðarlitaðri innréttingu og einstaklega góðu skápaplássi. Baðkar er með glervegg og sturtuaðstöðu. Handklæðaofn er á vegg hjá baðkarinu. Salerni er upphengt með innbyggðum vatnskassa.
Íbúðin er einstaklega vel um gengin.
Með íbúðinni er bílskúr, staðsettur í enda á bílskúrslengju sem stendur við hlið hússins. Í honum er gluggi, hitaveita, vaskur, heitt og kalt vatn, rafmagn, gott geymsluloft og bílskúrshurð með gönguhurð.
Í húsinu er sameiginleg vagna- og hjólageymsla með góðu aðgengi frá jarðhæðinni. Bæði íbúðin og húsið sjálft hafa fengið gott viðhald í gegnum árin.
Húsin við Ofanleiti standa á rúmgóðri lóð með leiksvæði inni í miðju og góðu rými milli húsanna - þau mynda notalegan og barnvænan kjarna með göngustígum og góðum tengingum bæði við samgöngur og þjónustu.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. Fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.