Óðinsgata 4 - Glæsileg og algjörlega endurnýjuð 3ja herbergja 82,8 fermetra íbúð á 3. hæð í virðulegu steinsteyptu húsi á frábærum stað í Þingholtunum - Opið hús þriðjudaginn 18. október á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkominFasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega falleg... Sýna meira
Óðinsgata 4 - Glæsileg og algjörlega endurnýjuð 3ja herbergja 82,8 fermetra íbúð á 3. hæð í virðulegu steinsteyptu húsi á frábærum stað í Þingholtunum - Opið hús þriðjudaginn 18. október á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkominFasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjart og algjörlega endurnýjaða 82,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með fallegu útsýni í virkilega fallegu og virðulegu steinsteyptu fjölbýlishúsi við Óðinsgötu í Reykjavík. Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2023 er kr. 55.750.000.-Eignin var mjög mikið endurnýjuð hið innra árið 2021. Þá var baðherbergi allt endurnýjað, sett upp ný og glæsileg eldhúsinnrétting og tæki, fataskápar í herbergjum, öll gólf lagfærð, og opnað á milli stofu og eldhúss. Raflagnir og tafla eru nýleg og íbúðin er öll nýmáluð að innan. Gegnheilt parket er á öllum gólfum og hefur það verið málað hvítt. Mögulegt er að slípa parketið upp, ef vill. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 2,7 metrar.Húsið að utan er í góðu ástandi. Nýlega var skipt um þakjárn, þakpappa, þakrennur og niðurföll. Klóaklagnir undir húsinu voru endurnýjaðar fyrir fáum árum síðan. Gler og gluggar voru endurnýjuð árið 2019.Lýsing eignar:Forstofa / gangur, málað gegnheilt parket á gólfi og fatahengi.Barnaherbergi, rúmgott og með fallegu útsýni til vesturs yfir borgina og út á sjóinn. Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum. Fallegt útsýni til vesturs yfir borgina og út á sjóinn. Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, gólfhiti, veggskápar og stór flísalögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg. Tengi fyrir þvottavél í baðherbergi og mögulegt að koma einnig fyrir þurrkara.Stofa, parketlögð og björt, opin við eldhús.Eldhús, opið við stofu, parketlagt, bjart og með góðri borðaðstöðu. Nýjar mjög fallegar viðarinnréttingar með burstuðu stáli á borðum, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp og nýjum tækjum.Á baklóð hússins er sérgeymsla, sem er 6,6 fermetrar að stærð. Bakhús sem geymsla er í er með nýju þaki.Sameiginlegur kyndiklefi er á jarðhæð hússins og þar er mögulegt að geyma hjól. Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið mjög gott viðhald undanfarin ár.Baklóð er tyrfð og skjólsæl, sameiginleg með öllum eignarhlutum hússins.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð mjög miðsvæðis í borginni.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu