Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala og kynna í einkasölu Oddabraut 10, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða vel skipulagða 4ra herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr. Birt stærð eignar er samtals 147,6 og þarf af er íbúðahluti 99 fm og bílskúr 48,6 fm. Einstaklega vel staðsett hús í elsta hluta Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunn- og leikskóla og íþróttamiðstöð og sundlaug.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofa, eldhús, 3 svefnherbergi, svefnherbergisgangur, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing eignar: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, teppi á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting, eldavél, helluborð, tengi fyrir þvottavél, korkur á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, fataskápar, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Inn af eldhúsi er gott svefnherbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Úr forstofu er gengið inn í flísalagðan svefnherbergisgang.
Baðherbergi: Skápar, baðker, flísar á gólfi og hluta til á veggjum.
Þvottahús: Nýtt sem herbergi í dag, útgengi út á baklóð, parket á gólfi.
Geymsla: Inn af forstofu, ómálað gólf.
Bílskúr: Sérstæður 48,6 fm bílskúr, þarfnast lagfæringar.
Lóð: Lóð 876,4 fm gróinn skjólgóður garður, gangstétt að húsinu er steypt og möl í innkeyrslu.
Húsið: Oddabraut 10 er steinsteypt á tveimur hæðum og er byggt 1958. Bílskúrinn er byggður úr holsteini og klæddu með bárujárni. Tvær íbúðir eru í húsinu.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftifarandi: * 2022 Hitalagnir endurnýjaðar
* 2021 Vatnslagnir endurnýjaðar.
* 2022 Frárennsli endurnýjað út í brunn.
* 2000 Þakjárn endurnýjað.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í september næstkomandi opnar nýr leikskóli í Þorlákshöfn sem mun bera nafnið Hraunheimar. Hraunheimar er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.