Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Núpahraun 7, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt heildarstærð eignar er 135,9 fm. og þar af er 26,1 fm. Húsið er hluti af Núpahrauni 7-11 sem eru þrjú raðhús sem staðsett eru í nýju hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Stutt er í alla helstu þjónustu skóla, og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.
Eignin skilast tilbúin til innréttingar samkvæmt byggingarstigi 3. Verð á byggingarstigi 3 - tilbúið til innréttingar: ? milljónir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, í opnu alrými er eldhús og stofa / borðstofa með útgengi út í garð og, baðherbergi, þvottahús, gangur, bílskúr (innangengt úr anddyri).
Frágangur utanhúss:
Sökklar: Eru staðsteyptir, einangraðir að innan með 75 mm plasteinangrun.
Útveggir: Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með ljósbrúnni (RAL7006) liggjandi álbáru og í innskotum er standandi álklæðning.
Þak: Þakið er klætt með svörtu bárujárni. Þakkantar/vindskeiðar eru úr svörtu áli. Lagt fyrir útiljósum. Þakrennur og niðurföll verða frágengin
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru úr timbri með álkápu svartir að lit og hvítum að innan, gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler.
Málmaksturshurð er í bílskúrnum.
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð. Ruslaskýli eru frágengin.
Frágangur innanhúss:Gólf: Gólfplatan er staðsteypt, einangruð með 100 mm plasteinangrun með ísteyptum gólfhita. Gólfplata verður flotdregin (er slípuð).
Innveggir og loft: Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin. Allir milliveggir verða komnir og brunaveggur milli húss og bílskúrs. Innveggir eru tvöfaldur klæddir með gifsplötum. Loft klædd með gifsplötum. Innveggir eru sparslaðir og fullmálaðir.
Innihurðir: Engar innihurðar eru komnar í húsið.
Hitalögn: Ísteyptar hitalagnir verða í öllum gólfum og verður tengigrind fyrir gólfhita frágengin. Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Rafmagn: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni. Rafmagnstaflan er frágengin miða við byggingarstig 3.
Neysluvatnslagnir: Eru tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tækjum.
Annað: Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat.
Byggingaraðili: SÁ hús ehf.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í s: 893-3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.