MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - NÁNAR UM ÞAÐ HÉRHraunhamar kynnir: Nýtt fjölbýlishús vel staðsett í Hamranesi, nýjasta hverfi Hafnfirðinga. Hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Í húsinu eru 15 íbúðir og allar með hita í gólfi, íbúðirnar skilast fullbúnar að utan sem innan ... Sýna meira
MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - NÁNAR UM ÞAÐ HÉRHraunhamar kynnir: Nýtt fjölbýlishús vel staðsett í Hamranesi, nýjasta hverfi Hafnfirðinga. Hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Í húsinu eru 15 íbúðir og allar með hita í gólfi, íbúðirnar skilast fullbúnar að utan sem innan án gólfefna en með flísum á gólfum í votrýmum, einnig fylgir innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Afhending í nóvember 2023.Um er að ræða 63,2 fm , tveggja herbergja íbúð með sérafnotafleti. Smelltu hér til að sjá aðrar eignir til sölu í Nónhamri 2-6.Húsið er staðsett innarlega í hverfinu og snýr einstaklega vel gagnvart sólu. Íbúðirnar eru vel skipulagðar og fylgja öllum íbúðum stórar og rúmgóðar svalir eða sérafnotasvæði. Lýsing eignarinnar skv. teikningu:Forstofa með fataskápum. Geymsla.Gott hol.Björt stofa og þaðan er utangengt út á sérafnotaflöt.Eldhús með smekklegri innréttingu, eldunartæki frá AEG. Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.Flísalagt baðherbergi með innréttingu, þvottaaðstöðu og sturtu. Innréttingar eru frá AXIS, eldunartæki frá AEG. Sjá nánar í skilalýsingu.Mikið er lagt upp úr hönnun og er húsið klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggar og því á húsið að vera viðhaldslétt. Lóðin verður falleg og vel frágengin með leiksvæði. Þetta eru fallegar íbúðir sem vert er að skoða. Bygginaraðilar er Byggingarfélag Gunnars og Gylfa, BYGG sem eru þekktir fyrir traust og góð vinnubrögð í áratugi. Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.Nánari upplýsingar veita sölumenn Hraunhamars:Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, Ársæll Steinmoðsson, löggilur fasteignasali, s. 896-6076, Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, Helgi Jón Harðarson, sölustjóri s. 893-2233, Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.