Fasteignamarkaðurinn ehf., s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja 102,6 fermetra útsýnisíbúð á 4. hæð ( efstu en gengið upp 3 hæðir) með tvennum svölum í góðu steinsteyptu fjölbýlishúsi við Njálsgötu í Reykjavík. Eignin var með þremur svefnherbergjum en eld... Sýna meira
Fasteignamarkaðurinn ehf., s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja 102,6 fermetra útsýnisíbúð á 4. hæð ( efstu en gengið upp 3 hæðir) með tvennum svölum í góðu steinsteyptu fjölbýlishúsi við Njálsgötu í Reykjavík. Eignin var með þremur svefnherbergjum en eldhús var stækkað sem nemur einu herbergi. Hægt að stúka aftur af svefnherbergi úr hluta eldhúss og hafa þrjú svefnherbergi í íbúðinni.Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stórt eldhús með borðstofu, hjónaherbergi, baðherbergi, stórt barnaherbergi og stóra stofu. Svalir útaf hjónaherbergi til norðurs og frábært útsýni þaðan og úr eldhúsi/borðstofu að Esjunni og út á sjóinn. Franskar svalir til suðurs í stofu og útsýni að Bláfjöllum og Hallgrímskirkju. Sér geymsla í kjallara með hillum. Sameign hússins er virkilega snyrtileg og vel umgengin og stigi upp á hæðir er bogadreginn, breiður og bjartur.Lýsing eignar:Forstofa/hol, linoleumdúklagt og innbyggðir fataskápar í vegg. Hjónaherbergi, rúmgott, linoleumdúklagt og með innbyggðum fataskápum í vegg. Útgengi á svalir til norðurs og virkilega fallegt útsýni að Esjunni, út á sjóinn og yfir borgina.Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél.Eldhús/borðstofa, í stóru opnu og björtu linoleumdúklögðu rými með fallegu útsýni að Esjunni og út á sjóinn. Virkilega fallegar uppgerðar upprunalegar innréttingar með tengi fyrir uppþvottavél.Herbergi II, mjög stórt, linoleumdúklagt.Stofa, mjög rúmgóð, björt og linoleumdúklögð með frönskum svölum til suðurs og útsýni að Bláfjöllum og Hallgrímskirkju.Í kjallara hússins eru:Sér geymla, með hillum, 6,5 fermetrar að stærð.Tvö sameiginleg þvottaherbergi, bæði með gluggum og sér tenglum fyrir hverja íbúð. Í báðum þvottaherbergjum er þurrkaðstaða og útgengi á baklóð hússins. Sameiginleg hjólageymsla er á breiðum og björtum gangi í kjallara og þaðan er útgengi á baklóð.Húsið að utan lítur ágætlega út. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og rólegum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Sundhöll Reykjavíkur, matsölustaði, verslanir og þjónustu.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu