Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Nesgata 25 efri hæð Neskaupstað.Björt og mikið endurnýjuð sérhæð.
Slétt lóð og mikið útsýni frá húsinu.
Íbúðin skiptist í forstofu og geymslu/forstofuherbergi sem hvorutveggja er í nýlegri viðbyggingu.
Flísar eru á gólfi í forstofunni og gólfhiti. Útihurðin er nýleg.
Úr forstofu er farið í innri forstofu og rúmgóðan gang.
Gott parket er á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu og góðri innréttingu.
Eldhúsið er stórt og með nokkur ára gamalli stórri innréttingu en nýlegu helluborði.
2 góð svefnherbergi (auk forstofuherbergisins sem í dag er nýtt sem geymsla)
Björt tvöföld stofa með gluggum til 2ja átta, 2 í suður og einum í vestur.
Þvottahús er á hæðinni, þar er lúga niður í annað sameiginlegt þvottahús/geymslu.
Sólpallur fylgir íbúðinni.
Þak hússins var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Grunnskólinn er við hlið hússins og einnig er stutt í leikskólann, verkmenntaskólann, sjúkrahúsið og alla helstu þjónustu.