Íbúð
3ja herbergja íbúð á 1. hæð í 4 hæða nýbyggingu með lyftu. Skiptist í forstofa, hol, hjónaherbergi með fataskáp, barnaherbergi með fataskáp, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús með eyju, stofu og borðstofu. Allar innréttingar sérsmíðaðar. Íbúðin skilast með flísum í votrýmum, annars án gólfefna. Gólfhiti í öllum herbergjum.
Stofa
Stofa og borðstofa. Loft slípuð og slétt sandspörsluð, grunnuð og máluð. Innfelld lýsing með dimmur. Stofan er hluti af opnu rýminu ásamt eldhúsi.
Eldhús
Eldhús með eyju. Sérsmíðuð innrétting frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með spónlagðum eða sprautulakkuðum sýnilegum hliðum og hurðum. Virgo Quartz steinborðplötur. Undirlímdur vaskur frá Tengi. Helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Innbyggðir ísskáp/eiskar. Raftæki frá Bræðrunum Ormsson.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi með fataskápum eða fataherbergi, barnaherbergi með fataskáp. Fataskápar eru sérsmíðaðir frá Brúnás, að innan úr ljósgráum spónaplötum, sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar eða sprautulakkaðar. Allir innvegir sandsparslaðir eða úr gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir.
Baðherbergi
Baðherbergi með gólfi flísalagðu og veggum flísalögðum upp í loft. Sérsmíðuð innrétting frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með sprautulakkuðum sýnilegum hliðum og hurðum. Virgo Quartz steinborðplötur. Speglaskápur eða spegill. Handlaug með hitastýrðu blöndunartæki frá Tengi. Innbyggt salerni með hæglokandi setu. Flísalagður sturtubotn með glerhlið. Innbyggt blöndunartæki í sturtu frá Tengi.
Þvottahús
Þvottahús með gólfi flísalagðu. Innrétting frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivaski og blöndunartæki í plastborði. Niðurfall í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara. Veggir grunnaðir og málaðir með votrýmismálningu.
Geymsla
Sérgeymsla í kjallara, 9,6 fermetrar. Steypt loft, veggir og gólf hreinsuð og máluð. Rafmagnstengill. Skilveggir málaðir án innréttinga. Með stálhurð eða bílskúrshurð og lögð epoxy efni.
Bílskúr
Sérmerkt bílastæði (B-21) í lokuðum og upphituðum bílskúr í kjallara hússins. Bílageymsla með máluðu lofti og Herakustik þar sem við á. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði. Sjálfvirkur opnunarbúnaður með fjarstýringu. Sprungur geta myndast á gólfinu.