Gunnar Þórisson fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð við Naustabryggju 4 í Reykjavík.Íbúðin er á annarri hæð í vönduðu fjölbýli í hinu litríka og sívinsæla Bryggjuhverfi við Grafarvoginn í Reykjavík. . Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.... Sýna meira
Gunnar Þórisson fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð við Naustabryggju 4 í Reykjavík.Íbúðin er á annarri hæð í vönduðu fjölbýli í hinu litríka og sívinsæla Bryggjuhverfi við Grafarvoginn í Reykjavík. . Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.Stutt er í helstu umferðaræðar, göngu- og hjólastíga í Elliðaárdal og Grafarvogi og fjöldi leikvalla er á svæðinu.Vandaðar eikarhurðir og fataskápar eru í íbúðinni og gegnheilt eikarparket á gólfum. Flísar eru á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi sem er innan íbúðar. Þar er þvottavél og þurrkari sem geta fylgt með í kaupunum. Ísskápur og uppþvottavél geta einnig fylgt með.Nánari lýsing á eign:Aðkoma er um yfirbyggðar svalir með sérinngangi.Forstofa: Ryðbrúnar náttúruflísar, fataskápur með eikarhurðum og fatahengi. Nýir skóskápar geta fylgt með.Eldhús: Eikarparket, falleg innrétting með eikarhurðum, ljósri borðplötu og góðu skápaplássi. AEG bakaraofn, helluborð og innbyggð vifta. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með.Borðstofa/stofa: Opin og rúmgóð með parketi. Gólfsíðir gluggar og útgengi á svalir.Svefnherbergi 1: Rúmgott og bjart með parketi og tvöföldum fataskápi.Svefnherbergi 2: Barnaherbergi með parketi og fataskápi.Baðherbergi: Hvítar flísar á gólfi og veggjum. Ljós innrétting með speglaskáp. IFO salerni, baðkar og sturtuklefi.Þvottahús er innan íbúðar með hvítum flísum á gólfi, stórum vask, hillum og vinnuborði. Þvottavél og þurrkari geta fylgt með.Geymslan er rúmlega 6 m2 á vel skipulögðum geymslugangi í kjallara. Traustar lagerhillur geta fylgt.Sameign er snyrtileg og vel við haldið. Í húsinu eru 16 íbúðir og vel rekið húsfélag sem hefur verið þjónustað af Eignaumsjón um árabil. Töluvert viðhald hefur verið á sameign á síðastliðnum árum, nýlegt teppi er á stigagangi, nýr mynddyrasími er í öllum íbúðum og umhverfisvæn og orkusparandi LED-ljós eru í sameign.Lyfta er í húsinu og gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara með sérútgangi. Sorpgeymslu er vel við haldið með tunnum til flokkunar og sótthreinsuð reglulega. Sorprennur eru frá stigagangi á öllum hæðum.Bílastæði fylgir íbúðinni í vel útbúnum og aðgengilegum bílakjallara. Hitablásarar og öryggis- og vatnsúðunarkerfi tengt stjórnstöð. Lagnir vegna rafbílahleðslu hafa nýlega verið lagðar fyrir hvert bílastæði og eru hluti sameignar.Aðgengi að stigahúsi er að framanverðu frá götunni, frá bílakjallara og frá sameiginlegum lystigarði. Lystigarðurinn er sameiginlegur með nærliggjandi fjölbýlum og er honum vel við haldið af fagaðila. Skemmtilegur og vinsæll leikvöllur er handan lystigarðsins, aðeins um einnar mínútu gangur.- Eftirsóknarvert fjölbýli í Bryggjuhverfinu.- Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.- Lagnir fyrir rafhleðslu við hvert stæði.- Nýr mynddyrasími í öllum íbúðum.- Lyfta, snyrtileg sameign og flott lóð.- Sorprennur frá öllum hæðum í stigagangi.- Sameiginlegur lystigarður. Gott aðgengi.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, 767-0777, , eða Kristjan Baldursson Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.