LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir bjarta og vel skipulagða fimm herbergja 182,9 m2 íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í bílageymslu við Naustabryggju 12 í bryggjuhverfi Grafarvogs. Stórar stofur, þrjú svefnherbergi , þvottahús og tvö baðherbergi. Mikil og glæsileg lofthæð, tvennar svalir og stórir gluggar á alrými sem gefur góða birtu inn í íbúðina.Íbúðin er í heild skráð 182,9 m2 skv FMR, þar af er 4,5 m² geymsla í sameignargangi.
Einnig er rúmgott mjög vel staðsett stæði í bílageymslu.Á neðri hæð er anddyri, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi, gott alrými sem er stórt eldhús og stórt stofurými með hurð út á suðursvalir með útsýni í suðaustur. Veglegur steyptur stigi er upp á efri hæð sem skiptist í gott stórt sjónvarpshol, ógert baðherbergi með geymslulofti, og hjónaherbergi sem hægt er að útbúa fataherbergi. Mikil lofthæð er á efri hæðinni og hurð út á suðursvalir.Lýsing eignar- neðri hæðAnddyri með fatahengi og gráum flísum á gólfi
Stofa/borðstofa í rúmgóðu parketlögðu rými með mikilli lofthæð og stórum suðurglugga, útgengi er út á svalir til suðurs.
Eldhús er opið inn í stofu, flísar á gólfi, filmuð L-laga innrétting með granít borðplötu, helluborði, háfi og ofni í borðhæð. Flísar eru frá borðplötu og upp í loft.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnerbergi - Innst á herbergisgangi með stórum hornglugga sem nær að gólfi, parket á gólfi.
Svefnherbergi -Innarlega á gangi á vinstri hönd með gólfsíðum glugga.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Gegnheilt handgert parket frá Agli Árnasyni eru á gangi, stofu og borðstofu, flísar í anddyri og eldhúsi.Efri hæð.Stigi liggur úr stofu upp á efri hæð, steinteppi á þrepum.Sjónvarpsstofa er í aðalrými, mikil lofthæð og stór suðurgluggi, steinteppi á gólfi. Útgengi er út á suðursvalir.
Hjónaherbergi er við norðurenda, mjög rúmgott herbergi með möguleika á að útbúa fataherbergi.
Baðherbergi efri hæðar er óinnréttað og nýtt í dag sem geymsla. Yfir baðherberginu er geymsluloft með ágætri lofthæð.
Í sameign hússins er sérgeymsla íbúðar og tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.
Bílastæði í bílageymslu með góðu aðgengi .Búið er að leggja grunninn fyrir rafhleðslustöð.
Eignin er 99,4 m2 íbúð, eining 0302 á 3.hæð, 79,0 m2 íbúðarhluti á 4.hæð, eining 0402 og 4,5 m2 geymsla, eining 0009 í kjallara.Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er á góðum stað við opið leiksvæði innan hverfisins. Stutt í leikskóla og skóla í Hamrahverfi Grafarvogs. Góðar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is