Fasteignasalan Hvammur 466 1600Mýrarvegur 118 íbúð 201 - Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á efri hæð/efstu í þríbýlishúsi á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 80,3 m², nýtanlegir fermetrar eru fleiri.Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjár geymslur innan íbúðar og sér geymslu í kjallarnaum.
Gengið er inn um
sameiginlegan inngang með flísum á gólfi og upp steyptan og málaðan stiga upp í íbúð.
Hol er með flísum á gólfi, drapplakkaðar. Af holi er gengið inn í öll helstu rými íbúðar.
Eldhús er með ljósu harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu með flísum á milli skápa og skemmtilegum glugga með útsýni til austurs. Sitt hvoru megin við innréttinguna, undir súð eru
geymslur.
Stofa er með ljósu harðparketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á suðvestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með ljósu harðparketi á gólfi. Í barnaherberginu er fjórfaldur fataskápur sem fylgir með við sölu eignar. Í hjónaherberginu er fellistigi upp á loft og lítil
geymsla undir súð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2022. Þar eru með flísar á gólfi og þiljur á veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, sturta með glerhurðum og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu.
Í kjallaranum er
sér geymsla, skráð 5,0 m² að stærð.
Annað- Nýtt harðparket var lagt á íbúðina árið 2022.
- Fyrir framan húsið er sameiginlegt þrefalt steypt bílaplan.
- Gler hefur verið endurnýjað að stærstum hluta.
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta, skipt um tengla og tafla í sameign hefur verið endurnýjuð.
- Vatnslagnir voru endurnýjaðar að hluta árið 2024.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
- Eignin er í einkasölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.