Hrafnkell og Atli á Lind kynna þessa vel skipulögðu og björtu þriggja herbergja íbúð á 3. hæð.
Eldhúsið var nýlega endurnýjað og það er þvottaaðstaða innan íbúðar.
Gott útsýni af svölum. Merkt bílastæði á lóð.
Stutt í alla almenna þjónustu, skóla, leikskóla og gönguleiðir í náttúruperlu Elliðaárdals.Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is / 690 8236
Atli Karl Pálmason Löggiltur fasteignasali / atli@fastlind.is / 662 4252Nánari lýsing:Anddyrið er með parket á gólfi og stórum skápum og leiðir inn í hol sem tengir önnur rými eignar.
Eldhúsið er rúmgott með nýlegri fallegri innréttingu og góðum eldhúskrók. Flísar á gólfi og gluggi til austurs.
Stofan og
borðastofan mynda opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum, parket á gólfi og útgengt á svalirnar til vesturs.
Svalirnar eru inndregnar og skjólasælar. Snúa til vesturs með góðu útsýni.
Baðherbergið er með nýlegum sturtuklefa, dúk á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél með efri skápum.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi, stórum fataskápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og glugga til austurs.
Geymsla á jarðhæð
Sameignilegt
þvottahús og þurrkherbergi á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð
Merkt bílastæði á lóð (ekki séreign íbúðar).
Við Möðrufell 3 eru 10 íbúðir.
Hlutfallstala í mhl. (M3) er 10,86%
Tilheyrir heildarhúsinu Möðrufell 1- 15.
Íbúð 301, 3. hæð til vinstri. Ekki er lyfta í húsinu.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 50.750.000.-Möðrufell 3, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01, fastanúmer 205-2772 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Möðrufell 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-2772, birt stærð 78.0 fm.
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.