Kjöreign fasteignasala kynnir: glæsileg og rúmgóð 5 herbergja 152,2 fm sérhæð við Miklubraut 66, 105 Reykjavík. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi. tvær stórar stofur, elddhús baðherbergi, þvottaaðstaða og geymslur.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi. Við hlið hennar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara en var áður gestasnyrting.
Stofa og borðstofa í opnu mjög rúmgóðu rými. Fallegir gólfsíðir gluggar. Útgengi á góðar suðursvalir.
Stofa/sjónvarpsherbergi er við hliðina á stærri stofunni. Rennihurð á milli. Væri auðveldlega hægt að nota sem svefnherbergi.
Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Falleg hvít L-laga innrétting. Gott vinnu- og skápapláss. Ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Innangeng sturta. Vegghengt klósett. Góður speglaskápur. Handklæðaofn.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með fataskáp. Parket á gólfi.
Húsið hefur nýlega fengið mikið og gott viðhald að utan skv. upplýsingum frá seljanda og húsfélagi, sumar 2024 var hús steinað, svalir endursteyptar og sett nýtt handrið, þak endurneglt og málað. Eignin var öll endurnýjuð að innan af fyrri eigendum um 2020, þar á meðal nýtt eldhús, nýtt baðherbergi, nýir gluggar og rafmagn endurnýjað
Bílskúrsréttur fylgir eigninni skv. eignaskiptayfirlýsingu.
Sérgeymsla í kjallara skráð 6,8 fm. Útigeymsla undir stiga skráð 2,9 fm.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara
Góð staðsetning í Hlíðunum beint á móti Klambratúni. Stutt er í alla helstu þjónustu. Skólar og leikskólar í næsta nágrenni. Seljandi skoðar skipti á minni eign.Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is