EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN!Miklaborg kynnir: bjarta og fallega fimm herbergja íbúð á 2. hæð með stórum afgirtum suðurpalli í litlu fjölbýli með lyftu við Marteinslaug í Grafarholti. Eigninni fylgir stæði í opnu bílskýli. Glæsilegt útsýni og nálægð við útivistasvæði við Reynisvatn og ... Sýna meira
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN!Miklaborg kynnir: bjarta og fallega fimm herbergja íbúð á 2. hæð með stórum afgirtum suðurpalli í litlu fjölbýli með lyftu við Marteinslaug í Grafarholti. Eigninni fylgir stæði í opnu bílskýli. Glæsilegt útsýni og nálægð við útivistasvæði við Reynisvatn og Úlfarsfell. Mjög stutt er í skóla og leikskóla í nánasta umhverfi, stutt í íþróttasvæði Fram. Mikil uppbygging á sér stað í hverfinu, þar má nefna byggingu nýrrar sundlaugar og íþróttaaðstöðu. Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931- Eignin skiptist í forstofu, opið eldhús og stofu, sjónvarpsherbergi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Íbúðin er skráð 125,6 fm. þar af er íbúð skráð 116,1 fm. og geymsla í kjallara 9,5 fm.Nánari lýsing:Forstofa með góðum fataskáp, parket á gólfi.Eldhús, vönduð L-laga viðar innrétting. Tengi fyrir uppþvottavél. Stofa og borðstofa, eru opin inn í eldhús í björtu rúmgóðu rými með glugga í suður og norður í gegnum íbúðina. Fallegt útsýni til norður yfir dalinn útgengi út á stóran afgirtan timburpall, parket á gólfi.Sjónvarpsherbergi, er rúmgott með parketi á gólfi. Í dag notað sem svefnherbergi. Hjónaherbergi rúmgott með fataherbergi, parket á gólfi.Barnaherbergi I, rúmgott og bjart með góðum fataskáp, parket á gólfi.Barnaherbergi II, rúmgott og bjart með góðum fataskáp, parket á gólfi.Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf með spónlagðri innréttingu, glugga, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.Þvottahús, er innan íbúðar með glugga, flísar á gólfi.Gólfefni íbúðar er gegnheilt eikarparket, olíuborið og flísar á baðherbergi og þvottahúsi.Eigninni fylgir sér geymsla á jarðhæð og hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Opið bílskýli fylgir eigninni. Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931-