Höfn fasteignasala kynnir:Lyngbrekka 11.Virkilega falleg og mikið endurnýjuð efri sérhæð á eftirsóttum stað í Kópavogi. Tvö til þrjú svefnherbergi, Opið stórt eldhús með eyju, nýjar innréttingar. Gengið er inn í sameiginlegan stigagang með 1.hæð. Komið inn í anddyri íbúðar á aflokaðan stigapall. Inn... Sýna meira
Höfn fasteignasala kynnir:Lyngbrekka 11.Virkilega falleg og mikið endurnýjuð efri sérhæð á eftirsóttum stað í Kópavogi. Tvö til þrjú svefnherbergi, Opið stórt eldhús með eyju, nýjar innréttingar. Gengið er inn í sameiginlegan stigagang með 1.hæð. Komið inn í anddyri íbúðar á aflokaðan stigapall. Inn af anddyri er forstofuherbergi. Komið er inn í stórt opið miðrými hússins þaðan sem gengið er í allar vistarverur íbúðar. Opið bjart eldhús með nýrri innréttingu, þvottahús inn af eldhúsi. Stofan er með stórum gluggum til suðurs og útgengt út á vestursvalir. Hjónaherbergið er stórt, góðir skápar og útgengt út á svalir úr hjónaherbergi. Annað rúmgott herbergi með skáp. Endurnýjað baðherbergi með flísum í hólf og gólf, baðkar, upphengt wc, góð innrétting og gluggi á baði. Ný gólfefni á allri íbúð ásamt ýmsum endurbótum. Virkilega björt og mikið endurnýjuð þriggja til fjögurra herbergja sérhæð.Nánari lýsing eignarinnar:Anddyri: Komið inn í anddyri á stigapalli. Inn af anddyri er forstofuherbergi sem í dag er notað sem geymsla.Hol: Í miðju íbúðar er opið rými þaðan sem gengið er í allar vistarverur íbúðar, opið inn í eldhús og stofu.Eldhúsið: Eldhúsið er með nýrri fallegri innréttingu og tækjum, Vel skipulagt og opið. Flísar á milli skápa. Opið inn í hol og stofu. Bjart og fallegt eldhús með miklu skápa og vinnuplássi. Inn af eldhúsi er afstúkað rými sem er þvottahús. Úr þvottahúsi gengið upp stiga upp á háaloft sem hægt er að nota sem geymslurými.Stofa: Opin og björt stofa, stórir gluggar til suðurs. Útgengt út á stórar vestursvalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Ný svalahurð.Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi með stórum nýjum skápum, útgengt úr herbergi út á svalir.Herbergi : Rúmgott barnaherbergi með góðum skáp.Forstofuherbergi: Inn af anddyri er forstofuherbergi sem hægt er að hafa sem þriðja herbergið. Er í dag notað sem geymsla. Baðherbergið: Snyrtilegt og endurnýjað baðherbergi, flísar í hólf og gólf, upphengt wc, baðkar, innrétting og góður gluggi.Í sameign er köld útigeymsla. Lóð sameiginleg. Inngangur sameiginlegur með 1.hæð.Á undanförnum árum er mikið búið að endurnýja íbúðina að innan og viðhald á húsi að utan sinnt. Eftirtaldar endunýjanir hafa verið gerðar á íbúðinni að sögn eigenda: 2017 var þakjárn endurnýjað, húsið múrviðgert og málað, skipt um gler og opnanleg fög að hluta, baðherbergið endurnýjað. 2018 vöru öll gólfefni í íbúð endunýjuð sem og undirlag. Eldhúsinnrétting og tæki. Innihurðir. 2019 var rafmagn í íbúð endurnýjað, efni, rofa og tafla. 2020 voru svalir endurgerðar og múraðar. 2021 nýjar svalahurðir.Þetta er virkilega falleg og mikið endurnýjuð sérhæð á frábærum stað í Kópavogi. Stutt í alla þjónustu.Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun hjá Ólafi G. Sveinbjörnssyni, löggiltum fasteignasala á Höfn fasteignasölu, í síma 8228283 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningum 0,4%)2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum..5. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi /umboð skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk