BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LYNGBAKKI 5, 740 Neskaupstað.
Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr innst við lítin botnlanga,
stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er timburhús, byggt árið 1980, eignin skiptist í íbúð 104 m² og bílskúr 31.5 m², samtals 135.5 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag: Anddyri, gangur, stofa og borðstofa, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla. Bílskúr
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing:
Anddyri, flísar á gólfi, gólfhiti (stýring við gólf), tvöfaldur fataskápur, rafmagnstafla.
Gangur, liggur innan við anddyri að öðrum rýmum eignarinnar, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, vegghengdur skápur getur fylgt.
Eldhús er opið við borðstofu, korkflísar á gólfi, U-laga innrétting, helluborð og ofn, háfur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, (uppþvottavél getur fylgt). Innangengt er í þvottahús frá eldhúsi.
Herbergi I, hjónaherbergi, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi IV, einfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti,
stýring við gólf, vaskinnrétting, salerni, sturtuklefi, gluggi.
Þvottahús/geymsla, flísar, þrefaldur fataskápur, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, útgengt er úr þvottahúsi. Hiti er í gólfi í þvottahúsi, stýring við gólf. Lúga upp á loft, ekki fellistigi.
Bílskúr, ómeðhöndlað gólf, bílskúrshurð með mótor. Vaskur, kalt vatn, heitavatnslögn er til staðar að vaski.
Geymsluloft yfir íbúð, kalt þak,
einangrað loft í bílskúr.
Ticino rofar og tenglar að mestu.
LYNGBAKKI 5 er timburhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið er klætt að utan með liggjandi málaðri timburklæðningu (málað 2022). Bárujárn á þaki, þak var yfirfarið og málað 2025. Timburgluggar og hurðar, (nýjir plastgluggar í flesta glugga eru til en ekki búið að skipta). Hellulagt bílaplan er framan við bílskúr, hellulögð stétt liggur að inngangi.
Lóð er gróin, timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið til suðurs og meðfram megninu af vesturhlið hússins.
Lóð er 655.0 m² að stærð samkvæmt fasteignayfrliti HMS: Lóðin er leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 30.09.1982 skjal nr. 428-N-000454/1982.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9272. Lyngbakki 5, Fjarðabyggð.Stærð: Íbúð 104 m². Bílskúr 31.5 m² Samtals 135.5 m².
Brunabótamat: 66.050.000kr.
Fasteignamat: 48.250.000 kr.
Byggingarár: 1980.
Byggingarefni: Timbur.
Eignarhald:
Rými 01.0101 Íbúð á hæð 104 Brúttó m².
Rými 01.0102 Bílskúr 31.5 Brúttó m².
Landeignanúmer:155535. Íbúðarhúsalóð 655 m².
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala