Heimili fasteignasala s: 530-6500, kynnir til sölu glæsilega þriggja herbergja íbúð með stórri verönd og sér bílastæði (merkt B26) í lokuðum bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi í Lundi, Kópavogi. Íbúðin er skráð 102,7 fm að stærð, þar af íbúðarrými 95,2 fm og sérgeymsla 7,5 fm, og skiptist í forstofu, s... Sýna meira
Heimili fasteignasala s: 530-6500, kynnir til sölu glæsilega þriggja herbergja íbúð með stórri verönd og sér bílastæði (merkt B26) í lokuðum bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi í Lundi, Kópavogi. Íbúðin er skráð 102,7 fm að stærð, þar af íbúðarrými 95,2 fm og sérgeymsla 7,5 fm, og skiptist í forstofu, svefnherbergi, hjónaherbergi með innangengu fataherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott eldhús með eyju og stofu með útgengi á fyrrgreinda timburverönd. Falleg og vel skipulögð eign á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru!Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., .Nánari lýsing: Komið inn í húsið um snyrtilega sameign þar sem eru flísar á gólfi, stórir gluggar, breiðir gangar, lyfta og rafdrifnar hurðir. Frá stigagangi er gengið út á stigapall og þaðan inn í íbúð um sér inngang. Anddyri íbúðar er með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Inn af anddyri er þvottahús og annað tveggja herbergja íbúðar. Þvottahús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi. Svefnherbergi er með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu opnu rými þar sem er parket á gólfi og útgengi á stóra timburverönd sem snýr til suðurs. Eldhúsinnrétting er frá Brúnás, með eyju og tækum frá AEG. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og innangengu fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf er með fallegri hvítri innréttingu, upphengdu WC, flísalögðum sturtuklefa og handklæðaofni á vegg.Í kjallara húseignar er geymsla íbúðar og í sameign er rúmgóð hjóla og vagnageymsla. Loks fylgir eign sér bílastæði í lokuðum bílakjallara, þar sem búið er að leggja lögn fyrir rafhleðslustöð, og í bílakjallara er einnig bílaþvottastæði sem íbúar hafa aðgang að. Glæsileg eign í vinsælu hverfi miðsvæðis á höfðuborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu og falleg útivistarsvæði. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lfgs, s: 896-2953, Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.