KRISTÍN EINARS. LGF. OG DOMUSNOVA KYNNA: EINKAR RÚMGÓÐA OG FALLEGA 4JA HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ ÁSAMT SÉRMERKTU STÆÐI Í LOKAÐRI UPPHITAÐRI BÍLAGEYMSLU.ÍBÚÐIN ER Á 9.hæð (næst efstu) MEÐ MIKLU ÚTSÝNI Í ÞRJÁR ÁTTIR. VANDAÐAR EIKARINNRÉTTINGAR, PARKET OG FLÍSAR Á GÓLFUM. RÚMGÓÐAR STOFUR MEÐ ÚTGENGI Á S... Sýna meira
KRISTÍN EINARS. LGF. OG DOMUSNOVA KYNNA: EINKAR RÚMGÓÐA OG FALLEGA 4JA HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ ÁSAMT SÉRMERKTU STÆÐI Í LOKAÐRI UPPHITAÐRI BÍLAGEYMSLU.ÍBÚÐIN ER Á 9.hæð (næst efstu) MEÐ MIKLU ÚTSÝNI Í ÞRJÁR ÁTTIR. VANDAÐAR EIKARINNRÉTTINGAR, PARKET OG FLÍSAR Á GÓLFUM. RÚMGÓÐAR STOFUR MEÐ ÚTGENGI Á SUÐ/VESTURSVALIR MEÐ SVALALOKUN. TVÖ BAÐHERBERGI OG ÞRJÚ SVEFNHERBERGI ÁSAMT FATAHERBERGI INN AF HJÓNAHERBERGI. Samkv. FMR skiptist eignin í 142,5 fm íbúð og 10,9 fm geymslu. Samtals 153,4 fm.Eignin skiptist í forstofu, 2 baðherbergi með sturtu, þvottaherbergi, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi fataherbergi inna af hjónaherbergi og rúmgott eldhús með eyju, stofu, borðstofu og yfirbyggðar svalir. FRÁBÆR STAÐSETNING, STUTT Í ALLAR STOFNÆÐAR, VERSLANIR GÖNGUFÆRI OG GÖNGULEIÐIR Í FOSSVOGSDALNUM.Nánari lýsing:Forstofa, rúmgóð, flísalögð og með fataskápum á heilum vegg upp í loft. Gott bjart opið rými með gólfsíðum gluggum sem sameinar eldhúsið, stofuna, borðstofuna og sjónvarpsholið. Eldhús, rúmgott og opið við stofu. Fallegar innréttingar frá Brúnás úr eik, tengi fyrir uppþvottavél. Í eldhúsi er stór eyja með helluborði og háfi yfir og áfastri borðaðstöðu. Þvottaherbergi, með innréttingum, vinnuborði og vaski. Samliggjandi stofur, parketlagðar og rúmgóðar með útgengi á mjög stórar yfirbyggðar svalir með miklu útsýni til vesturs, austurs og suðurs.Hjónaherbergi með glugga til vesturs. Úr hjónaherbergi er innangengt í fataherbergi.Baðherbergi er beint á móti hjónaherberginu, flísalagt í hólf og gólf, innrétting með föstum spegli, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð walk-in sturta.Svefnherbergi I, rúmgott með fataskápum. Svefnherbergi II, rúmgott með fataskápum. Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, fastur spegill, vegghengt wc, handklæðaofn og flísalögð sturta. Gólfhiti í öllum gólfum. Eikarparket á gólfum nema á votrýmum þar eru flísar.Sameign er afar snyrtileg, 2 lyftur eru í húsinu sem ganga niður í bílageymslu, gangar teppalagðir og á aðalhurðumer sjálfvirkur hurðaopnari. Stæði í lokaðri bílageymslu. Þvottastæði fyrir bíla er í bílgeymsluhúsi. 10,9 fm sérgeymsla.Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur eru í húsinu.Lóðin er snyrtileg með stóru bílaplani.Þetta er eign sem er sérlega vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Göngufæri í Bónus og fleiri verslanir við Nýbýlaveginn.Fjölmargar hjólaleiðir í nágrenninu t.d. í Fossvogs- og Elliðárdalinn..Nánari upplýsingar veitir:Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.