Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega 2ja herbergja íbúð í Lundi 17, merkt 02-02 á annari hæð, skráð samkvæmt fmr. 107 fm auk stæðis merkt. 01 í bílastæðishúsi. Um er að ræða nýbyggingu, lyftuhús á sex hæðum með lyftu sem gengur niður í lokaða bílageymslu. Allar innréttingar verða frá Brúnás, ei... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega 2ja herbergja íbúð í Lundi 17, merkt 02-02 á annari hæð, skráð samkvæmt fmr. 107 fm auk stæðis merkt. 01 í bílastæðishúsi. Um er að ræða nýbyggingu, lyftuhús á sex hæðum með lyftu sem gengur niður í lokaða bílageymslu. Allar innréttingar verða frá Brúnás, eikarhurðir frá Parka, vönduð eldhústæki frá AEG og falleg hreinlætistæki frá Tengi. Flísar verða á milli skápa í eldhúsi þar sem við á. Íbúðin sjálf er afhent án gólfefna nema á baðherbergi og í þvottahúsi verða flísar. Þetta er vafalítið ein allra glæsilegustu staðsetningu íbúðarbyggðar á höfuðborgarsvæðinu. Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, fasteignasali í gsm. 699-4610 eða Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri,sjónvarpshol, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi. Komið er inní anddyri með eikarfataskáp sem nær upp í loft. Sjónvarpshol: Gott sjónvarpshol strax og komið er innúr anddyri. Úr sjónvarpholinu sem er gengið inn í baðherbergi, svefnherbergi og hjónaherbergi. Mjög góð nýting er á fm. Eldhús/Stofa/borðstofa: Mynda stórt og bjart alrými Útgengt er frá stofu út á svalir.
Eldhús er opið og rúmgott útbúin AEG heimilistækjum efri ofn og örbylgjuofn með burstaðri stáláferð, keramik-helluborði með fjórum hellum, blástursofni og eyju með háfi yfir. Innréttingar eru sérsmíðaðar af Brúnás með ljúflokunarbúnaði á skúffum. Borðplötur eru plastlagðar. Flísalagt er á milli efri og neðri skápa þar sem við á. Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu fataherbergi innaf og góðu skápaplássi. Baðherbergi: Er með fallegri innréttingu og flísalagt gólf og veggir uppí 2 metra hæð. Uppsett og innbyggt salerni, flísalagður sturtubotn með sturtuhlið úr gleri, handklæðaofn. Blöndunartæki frá Tengi eru við handlaug og sturtu.Þvottahús: Flísalagt gólf, innrétting úr ljósgráuum plasthúðum spónaplötum með, ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði.Tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Geymsla: Er í sameign og eru loft, veggir og gólf máluð.
Skráð 7,2 fm. Breytingar á íbúðum: Innréttingar eru sérsmíðaðar, en óski kaupandi eftir breytinginum þurfa slíkar óskir að koma fram tímanlega. Kaupandi greiðir allan viðbótarkostnað vegna breytinganna. Geta þær seinkað afhendingartíma. Sameign: Lyfta er í húsinu sem gengur niður í bílageymslu. Komið er inná aðra hæð og eru 3 íbúðir á hæð nema á efstu hæðini eru tvær íbúðir. Sjá nánar í skilalýsing Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, fasteignasali í gsm. 699-4610 eða Niðurlag: Þetta er vönduð íbúð á einstökum stað á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í margvíslega þjónustu og afþreyingu svo sem Smáralindina, Kringluna svo að ekki sé talað um menningarlífið í Gjánni, s.s. Salurinn og Gerðasafn, eru steinsnar frá Lundi. Hér er vafalítið um að ræða eina af glæsilegustu staðsetningu íbúðarbyggðar þar sem stutt er í Fossvoginn með sinni einstöku fegurð, Öskjuhlíðina og rómaðar gönguleiðir sem umlykja Lundinn svo að gott jafnvægi er á milli byggðar og náttúru. Endilega hafið samband ef þið hafið á huga að fá sendar teikningar eða skilalýsngu. Bygginaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. www.bygg.is Íbúðir í Lundi 17-23 verða afhentar á tímabilinu jan-júní 2016. Sameign að utan og lóð verða afhent haustið 2016. Bílgeymsla verður afhent í jan. 2016.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.2. Þinglýsingargjald er 2000,- kr af hverju skjali.3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð. Fletta í fasteignalista