Komið er samþykkt tilboð í eignina með fyrirvara um fjármögnunFasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, , gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Ljósheima 9, 104 Reykjavík;Fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (f.ofan kjallara) í litlu fjölbýli innst í botnlanga á besta stað í 104 Reykj... Sýna meira
Komið er samþykkt tilboð í eignina með fyrirvara um fjármögnunFasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, , gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Ljósheima 9, 104 Reykjavík;Fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (f.ofan kjallara) í litlu fjölbýli innst í botnlanga á besta stað í 104 Reykjavík.Um er að ræða vel viðhaldið hús og íbúð á stórri lóð á þessum vinsæla barnvæna stað í borginni.Íbúðin er óvenju rúmgóð og björt, með gluggum á 3 vegu. Skipti möguleg á minni eign.- Eignin er skráð skv. ÞÍ 88,5 fm (Íbúð 81,7 fm + geymsla 6,8 fm)- 3ja herbergja - 2 mjög rúmgóð svefnherbergi- Endurnýjað eldhús 2004 og yfirfarið 2020 (málun, borðplata/helluborð)- Endurnýjað baðherbergi 2004/2007- Útgengi á suðursvalir úr stofu og öðru svefnherbergjanna- Hús og íbúð fengið gott viðhald- 2019: Ytra byrði hússins lagað sbr. ástandsskýrslu sem gerð var 2018 og er fyrirliggjandi- Hús stendur á stórri lóð í rólegum botnlanga Íbúðin er 3ja herbergja með gluggum á þrjá vegu sem snúa í suður,vestur og norður. Gengið er upp tröppur innan sameiginlegs stigagangs að eigninni.Nánari lýsingEignin skiptist í : Forstofuhol/gangur, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.Nánari lýsing: Forstofuhol/gangur: Parketlagt með útdraganlegum fataskáp.Stofa/borðstofa er parketlögð rúmgóð með stórum glugga og útgengi á suðursvalir.Eldhús: Parketlagt í sér rými. Með fallegri L-laga hvítri innréttingu og eyju ásamt rúmgóðum borðkrók. Helluborð, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með ljósbæsaðri vaskinnréttingu og skáp, salerni og baðkari. Gluggi er á baði.Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt með 4-földum fataskáp og útgengi á svalir.Svefnherbergi 2: Rúmgott, parketlagt með 4-földum fataskáp.Geymsla: er 6,8 fm, staðsett í sameign í kjallara.Þvottahús: Er í sameign í kjallara með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.Sérmerkt bílastæði er á lóð. Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, fallega, 3ja herbergja íbúð sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað í lokuðum botnlanga.Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni. Stutt í íþróttamiðstöð, Skeifuna, Glæsibæ, Laugardalinn ofl.Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, , gsm. 695-89805