Eignamiðlun kynnir:Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja 106,5 m2 útsýnisíbúð á 8. hæð við Ljósheima 6 í Reykjavík. Gluggar á þrjá vegu í íbúðinni. Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald, er klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu. Tvennar svalir og góð sér geymsla tilh... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja 106,5 m2 útsýnisíbúð á 8. hæð við Ljósheima 6 í Reykjavík. Gluggar á þrjá vegu í íbúðinni. Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald, er klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu. Tvennar svalir og góð sér geymsla tilheyrir eigninni sem er á 9. hæð hússins. Frábær staðsetning og mikið útsýni. BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða Eignin skiptist í anddyri, eldhús, gang, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara með mjög fínum vélum, geymsla og svalir á 9. hæð. Lyfta er í húsinu. Náttúrusteinn er á gólfi í forstofu og eldhúsi, harðparket á gólfi í stofu, gangi og svefnherbergjum og flísar á baði. Komið er inn í gott anddyri. Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, bakarofni, keramik helluborði, háfi yfir úr burstuðu stáli. Hillur fyrir ofan neðriskápa með innfelldri halogenlýsingu. Tengi er fyrir þvottavél í eldhúsi. Rúmgóður borðkrókur í eldhúsi. Nýlegur tvöfaldur Samsung ísskápur fylgir með íbúðinni ásamt nýegri uppþvottavél. Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð og er þaðan útgengi á svalir í vestur með mögnuðu útsýni. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, það er flísalagt í hólf með upphengdu salerni, góðri baðinnréttingu og baðkari með sturtu yfir. Fataskápur er á gangi. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi er rúmgott með nýlegu harðparketi á gólfi, stórum fataskáp og er útgengi á svalir í suðvestur. Tvö lítil barnaherbergi sem búið er að breyta í eitt stórt, auðvelt að setja upp vegg til að hafa tvö barnaherbergi. Uppi á næstu hæð, þeirri efstu er góð geymsla með glugga auk þess sem þar eru sameiginlegar svalir. Um er að ræða bjarta og fallega fjögurra herbergja útsýnisíbúð á 8. hæð í góðu fjölbýli við Ljósheima í Reykjavík. Eignin er afar miðsvæðis, örstutt í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og menntaskóla, Laugardalinn ofl. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali. ***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook