**Opið hús þriðjudaginn 20. ágúst frá kl. 17:00 til 17:30 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fa... Sýna meira
**Opið hús þriðjudaginn 20. ágúst frá kl. 17:00 til 17:30 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 106,6 m2, 3ja herbergja íbúð á annarri hæð, í lyftuhúsi með fallegu útsýni við Litlakrika 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 106,6 m2, þar af íbúð, 93,2, m2 og geymsla 13,4 m2.Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í kjallara. Búið að samþykkja svalalokanir í húsinu og teikningar liggja fyrir. Frábær staðsetning, stutt í verslun og þjónustu. Krikaskóli er í hverfinu og stutt er í íþróttasvæðið að Varmá.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa og hol eru með parket á gólfi og fataskáp.Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir í austur með fallegu útsýni.Eldhús er með parket á gólfi og góðri innréttingu með blástursofni, helluborði og háfi. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt.Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari með sturtu aðstöðu og handklæðaofni.Þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu og skolvaski. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.Sérgeymsla er í sameign í kjallara, 13,4 m2.Eigninni fylgir hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu í kjallara.Bílastæði með rafhleðslustöð merkt íbúðinni er framan við húsið.Verð kr. 73.000.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.