Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:
Endaraðhús, Leynisbraut 8, Akranesi. SKIPTI MÖGULEG Á MINNI EIGN.Viðhaldslétt, staðsteypt og steinað 136,5 fm hús með 31,4 fm bílgeymslu, byggt 1999, tekið í notkun 2003
Húsið er vel skipulagt og því hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin.
Lýsing eignar:Forstofa með skápum, flísar á gólfi, gólfhitalögn.
Hol, borðstofa, eldhús og stofa með flísum á gólfi.
Dyr úr stofu út á
sólpall með heitum potti
Sjónvarpshol parketlagt.
3
svefnherbergi, skápar í öllum. Parket á herbergjum og svefnherbergisgangi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting, sturta, gólfhitalögn.
Eldhús, góð innrétting, flísar milli skápa, veggofn, keramikhelluborð, innfelldur ísskápur fylgir.
Innangengt í bílskúr í gegnum þvottaherbergi.Þvottaherbergi með skápum og flísum á gólfi.
Bílskúr (31,4 fm) með flísum á gólfi og uppá hálfa veggi, skápar, geymsluloft. Fjarstýrður hurðaopnari . Loftræstivifta.
Bílastæði steypt/hellulagt. Hitalögn.
Annað:Gler á suðurhlið endurnýjað og þakjárn málað ca. 2021.
Allar innréttingar og "upptekið" loft í alrými er úr ÖL.
Nánari upplýsingar veitir:Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / soffia@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.