M2 Fasteignasala kynnir: Glæsilegt steypt 3.herb raðhús við Leirdal 8A, 260 Innri-Njarðvík, Reykjanesbær.Eignin Leirdalur 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 250-4396, birt stærð 85.2 fm.
Um er að ræða nýlegt raðhús, góð verönd með heitum pott, hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu.
* Laus við kaupsamning
* Loft tekin upp í alrými eignarinnar
* Heitur pottur
* Snjóbræðsla í innkeyrsluLýsing eignar:Komið er inn í flísalagða
forstofu, hvítir skápar og flísar á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og í sturtu, rúmgóð innrétting mað vask ásamt upphengdu salerni, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baði ásamt glugga.
Eldhúsið og stofan eru í opnu rými - upptekin loft.
Eldhúsið er með hvítri L-innréttingu ásamt ofni, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Stofan er opin og björt, útgengt frá stofu á lokaðan suður sólpall með heitum potti.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum.
Geymsla er innan íbúðar.
Barnaherbergi með parket á gólfi og skáp.
Þetta er virkilega vel skipulagt raðhús steypt bílastæði með snjóbræðslu fyrir framan hús og baklóð er með sólpalli og tyrfð lóð.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.