LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / ) kynna:Fallega og snyrtilega þriggja herbergja 94,8 fm íbúð á fimmtu hæð ásamt stæði í lokuðum bílakjallara við Lautasmára 3 í Kópavogi. Íbúðin var öll máluð árið 2022 og þá var einnig skipt um alla rofa og tengl... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / ) kynna:Fallega og snyrtilega þriggja herbergja 94,8 fm íbúð á fimmtu hæð ásamt stæði í lokuðum bílakjallara við Lautasmára 3 í Kópavogi. Íbúðin var öll máluð árið 2022 og þá var einnig skipt um alla rofa og tengla. Íbúðin er frábærlega vel staðsett, örstutt frá verslunarmiðstöðinni Smáralind, Smáratorgi og allri helstu þjónustu. Smáraskóli er í göngufæri ásamt Fífunni og íþróttasvæði Breiðabliks. Íbúðin skiptist í hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla í kjallara og sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Lyfta er í húsinu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Birtar stærðir og merkingar: Íbúð 89,8 fm (merkt 03-0501) og geymsla 4,5 fm (merkt 03-0018), alls 94,8 fm. Bílastæði (merkt 02Y). Sjá eign í 3DNánari lýsing:Hol er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. Svefnherbergi I er með fataskáp, parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðinnréttingu, baðkari og sturtuklefa. Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél, skolvaski og hillum, flísar á gólfi. Eldhús er með innréttingu á tveimur hliðum með helluborði, bakarofni og tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur innst í eldhúsi með fallegu útsýni. Parket á gólfi. Svefnherbergi II er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi. Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Svalir út frá stofu í suð-austur. Sér geymsla í sameign. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Allar nánari upplýsingar veita:Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasalií félagi FF / / 823-2800Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasalií félagi FF / / 823-2600Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA