LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og mikið endurbætta stúdíóíbúð með suðursvölum á þriðju og efstu hæð við Laugaveg 62 í Reykjavík. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, gengið inn frá Vitastíg. Um er að ræða vel skipulagða íbúð með góðu alrými og nýlegum innréttingum á vinsælum stað í miðbænum.
Birt stærð eignarinnar er 34,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands en henni fylgir hlutdeild í sameign, geymslu undir stiga.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
Nánari lýsingForstofa/anddyri með fataskáp, parket á gólfi.
Alrými með innbyggðu fellirúmi og góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, spanhelluborði, innbyggðum tækjum sem fylgja, steinn á borði og útgengi á suðursvalir, parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt í hólf og gólf með innfelldri sturtuaðstöðu, handlaug úr steini frá S. Helgasyni og upphengt salerni.
Húsgjöld eignarinnar eru 12.000 kr. á mánuði og innifela meðal annars almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign og framlag í framkvæmdasjóð.
Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum, meðal annars verið múrað og málað að utan, gluggar og gler endurnýjuð þar sem þörf var á og þak yfirfarið og lagfært. Þá hefur gler í íbúðinni verið endurnýjað.
Eignin er á
vinsælum stað við Laugaveg þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og mannlíf miðbæjarins. Einnig er stutt í sundlaug og skóla.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.