Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala kynna: Sérlega sjarmerandi, björt og falleg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í borginni rétt við Laugardalinn. Stórar svalir í vestur. Draumastaðsetning þar sem Laugardalurinn, skólar, leikskólar, hús... Sýna meira
Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala kynna: Sérlega sjarmerandi, björt og falleg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í borginni rétt við Laugardalinn. Stórar svalir í vestur. Draumastaðsetning þar sem Laugardalurinn, skólar, leikskólar, húsdýra og fjölskyldugarðurinn, Hreyfing og heilsugæsla er allt í göngufjarlægð. Örstutt er í alla þjónustu, stórkostlegar gönguleiðir og allt annað sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóðaEignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, og baðherbergi. Þvottahús og geymsla er í sameign.Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp og flísum á gólfiEldhús er með endurnýjaðri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, bakaraofn. keramik helluborði og háf. Góður eldhúskrókur við glugga. Dúkur er á gólfi.Stofan er rúmgóð og björt. Parket er á gólfi. Gengið er út á stórar svalir frá stofu sem snúa í vestur. Svefnherbergin eru tvö með fataskápum og parketi á gólfi.Baðherbergið er með baðkari, handlaug, salerni og opnanlegum glugga. Flásalgt í hólf og gólf.Sameignin er afar snyrtileg og einstaklega falleg með þvottahúsi þar sem hver og einn er með sína þvottavél og sér 9,7fm geymsla Almennt hefur verið gott viðhald og samvinna um rekstur húsfélags. Húsgjöld eignarinnar eru 20.586 kr á mánuði , innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, hiti á íbúð, rafmagn í sameign, húseigandatrygging. Samkvæmt fasteignamati ríkissins er íbúð á hæð skráð 85,7 fm og geymsla í kjallara skráðar 9.7 fm. Samtals 95,4 fm, ásamt sameignarrými í kjallara, þvottahús o.flFrekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.000 kr.