Domusnova fasteignasala kynnir Laugarásveg 1, 104 Reykjavík. Um er að ræða stórglæsilega bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð með góðu útsýni og stórum svölum í fjölbýli við Laugardalinn. Íbúðin var endurnýjuð að innan fyrir einhverjum árum síðan og lítur hún mjög vel út. Vandað ... Sýna meira
Domusnova fasteignasala kynnir Laugarásveg 1, 104 Reykjavík. Um er að ræða stórglæsilega bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð með góðu útsýni og stórum svölum í fjölbýli við Laugardalinn. Íbúðin var endurnýjuð að innan fyrir einhverjum árum síðan og lítur hún mjög vel út. Vandað hefur verið allt efnisval og innréttingar eru sérsmíðaðar. Sjón er sögunni ríkari. Íbúðin skiptist í forstofuhol, gestasalerni, tvö svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og þvottahús. Geymsla í kjallara.Eignin er skráð 107,6 fm á stærð og skiptist í 97,8 fm íbúð og 9,8 fm geymslu.Þetta er glæsileg íbúð á vinsælum stað við Laugardalinn í Reykjavík þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, þjónustu, líkamsrækt, sund og allt annað sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða.Lýsing eignar:Forstofa: Komið inn í forstofuhol með skápum sem ná alla leið upp í loft. Innfelld lýsing í lofti.Gestasnyrting: Inn af forstofunni gestasnyrting með upphengdu salerni og flísum á gólfi.Herbergi: Inn af forstofunni er minna svefnherbergið. Þar er fataskápur og innfelld lýsing í lofti og útsýni til vesturs.Hjónasvíta: Rúmgott herbergi með innfelldri lýsingu í lofti. Gott fataherbergi og gengið inn á baðherbergi frá þessu herbergi.Baðherbergi: Innangengt úr hjónaherbergi. Baðherbergið er allt smekklega flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og walk-in sturtuklefa. Gluggi er á baðherberginu.Eldhús / borðstofa: Eldhúsið er með svartri háglans eldhúsinnréttingu og stórri eyju. Til hliðar við eldhúsið er góður borðstofukrókur og þar er útgengt út á stórar L-laga svalir.Stofa: Stofan og eldhúsið liggja saman í opnu rými. Innfelld lýsing í lofti. Stórir gluggar með útsýni til vesturs og útgengt út á svalirnar einnig frá stofu.Þvottahús: Þvottahús innan íbúðar með innréttingu með stæði í vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara og skolvask.Svalir: Stórar L-laga svalir sem snúa til austurs og suðurs. Gengið út á svalir frá borðstofukrók og stofu.Geymsla: Í kjallara er sér 9,8 fm. geymsla. Þvottahús í sameign: sameiginilegt þvottahús í sameign hússins.Gólfefni: Fallegt parket á gólfum og flísar á baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahúsi. Hússjóður:Verið er að greiða 27.745 kr. í hússjóð.Nánari upplýsingar veita:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið Andri Hrafn Agnarsson fasteignasali í síma 698-2127 eða í tölvupósti á netfangið Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.