LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir í sölu snyrtilegt 194,10 m2 einbýlishús á einni hæð með góðri lofthæð í alrými ásamt rúmgóðum bílskúr á frábærum stað í friðsælum botnlanga við Látrasel 12 með fallegu útsýni til Esjunnar og Bláfjalla. Suðurhlið hússins stendur á jaðarlóð, verönd og garður njóta því mikils næðis. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 194,10 m2 og þar af er 40,3 m2 bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, 3-4 svefnherbergi og bílskúr.Nánari lýsing eignarForstofa með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp
Gestasalerni ( ógert, en allar lagnir til staðar )
Þvottahús með máluðu gólfi, skolvaskur, hillur og útgengi út á hellulagða verönd með skjólveggjum.
Stofa/ borðstofa með pl parketi á gólfi og útsýni til Esju og Bláfjalla.
Eldhús með eldri innréttingu með efri og neðri skápum og pl.parketi á gólfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, baðkar og sturta, innrétting með efri og neðri skápum.
Hjónaherbergi með pl.parketi á gólfi og fataskáp
Herbergi 1: með pl.parketi á gólfi og lausum fataskáp
Herbergi 2 : með pl.parketi á gólfi
Herbergi 3: með pl.parketi á gólfi
Bílskúrinn er rúmgóður með um 3 metra lofthæð, hiti , rafmagn , heitt og kalt vatn, geymsluloft er yfir öllum bílskúrnum, extra há bílskúrshurð.
Bílaplanið er malbikað.Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s skóla, leikskóla, matvöruverslanir o.fl.Skemmtilegar gönguleiðir eru einnig í næsta nágrenni. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is