Miklaborg og Ásgrímur Ásmundsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna: Glæsileg 4 herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í fjölbýli við Löngulínu í Garðabæ. Eigninni fylgir bílskúr sem innangengt er í frá sameign. Frábært útsýni til sjávar í átt að Esju. Aukin lofthæð í stofu. Þvottaherbergi in... Sýna meira
Miklaborg og Ásgrímur Ásmundsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna: Glæsileg 4 herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í fjölbýli við Löngulínu í Garðabæ. Eigninni fylgir bílskúr sem innangengt er í frá sameign. Frábært útsýni til sjávar í átt að Esju. Aukin lofthæð í stofu. Þvottaherbergi innan íbúðar. ATH - Það er ekki lyfta í húsinu. Bókið skoðun í s. 865-4120 eða á netfanginu Nánari lýsing: Inngangur er sameiginlegur en alls eru níu íbúðir í stigaganginum. Eignin er á þriðju hæð, skráð 148,7 fm, þar af er íbúðin sjálf 119,1 fm, bílskúr 22,9 fm og geymsla 6,7 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, bílskúr og sérgeymslu. Húsið er byggt árið 2008 af Bygg. Forstofa er með fataskáp og parketi á gólfi. Stofa/borðstofa eru í sama opna rýminu mað aukinni lofthæð, stórum gluggum sem ná upp undir loft. Útgengt er á svalir frá stofu. Parket er á gólfum í stofu og borðstofu. Lofthæð í stofu og eldhúsi er allt að 5,2m. Eldhús er opið inn í stofu með ljósri eikarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi. Hjónaherbergi er um 18 fm með fataherbergi og parketi á gólfi. Barnaherbergi eru tvö talsins með fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, stórri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni, baðkari og sturtuklefa. Þvottaherbergi er staðsett innan íbúðar með borði, hillum, skolvaski, snúrum og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. Sérgeymsla er 6,7 fm. Bílskúr er 22,9 fm með rafmagni, hita og vatni. Bílskúr er með rafknúnum hurðaopnara. Innangengt er í bílskúr frá sameign. Glæsileg 4 herbergja íbúð á efstu hæð ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað í Sjálandshverfi í Garðabæ. Aukin lofthæð í stofu og eldhúsi. Frábært útsýni til sjávar í Átt að Esju, Akrafjalli og Skarðsheiði. Þvottaherbergi innan íbúðar. Allar upplýsingar um eignina veitir:Ásgrímur Ásmundsson hdl. og löggiltur fasteignasali í s. 865-4120 eða Fletta í fasteignalista