Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Langahlíð 6 íbúð 201 - Skemmtileg 5-6 herbergja efri hæð með sér inngangi og bílskúr í fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 188,1 m²Eignin skiptist í forstofu, stigapall, eldhús, sjónvarpshorn, stofu og borðstofu, gang, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallaranum er herbergi/geymsla.
Forstofa og stigapallur eru með gráum flísum á gólfi og á stiga er grátt teppi. Á stigapallinum er stór fataskápur.
Eldhús var endurnýjað árið 2014. Sérsmíðuð hvít sprautulökkuð innrétting og eyja frá Tak innréttingum með flísum á hluta veggja. AEG span helluborð og ofn.
Sjónvarpshorn er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum glugga til vesturs.
Stofa og borðstofu eru í opnu rými, þar er ljóst harðparket á gólfi og stórir gluggar til suður og vesturs og hurð út á rúmgóðar suðvestur svalir sem voru stækkaðar fyrir nokkrum árum.
Gangur er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi, öll með ljósu harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp og svo hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, sturta og opnanlegur gluggi. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu.
Í kjallaranum er
herbergi/geymsla með dúk á gólfi og opnanlegum glugga.
Bílskúr er skráður 28 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og út í hann liggur rafmagn en ekkert rennandi vatn. Hann er kynntur með lausum rafmagnsofni í dag. Fyrir framan er steypt og hellulagt bílaplan.
Annað- Baðherbergi, gólfefni í forstofu og á stig og innihurðar var endurnýjað árið 2016. Þá voru inntök endurnýjuð og hluti af bílaplani og stétt hellulagt.
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar.
- Eldhús var endurnýjað árið 2014.
- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir nokkrum árum. Hitakapall var settur í þakrennu árið 2023.
- Húsið var málað að utan sumarið 2020.
- Stutt í ýmsa þjónustu, verslun, skóla og leikskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.