Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Langahlíð 6 - 101, 5 herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi með bílskúr og sér geymslu í kjallara. Heildarstærð eignar er 168,8 m², þar með talinn bílskúr. Staðsetningin er afar eftirsótt, í nálægð við leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði Þórs.
Eignin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, auk sérgeymslu í kjallara.
Forstofa er með svörtum náttúruflísum á gólfi og hvítmáluðum fataskáp.
Gangur er parketlagður með gegnheilu parketi. Á gangi er þrefaldur, hvítmálaður fataskápur ásamt bekkplötu milli skáps og veggs.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með gegnheilu parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi með svörtum náttúruflísum. Innréttingin er hvít, upphengt nýlegt salerni og baðkar með sturtutækjum. Opnanlegur gluggi.
Eldhús er með svörtum náttúruflísum á gólfi og hvít lakkaðri innréttingu með hvítum flísum milli skápa. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, auk þess sem bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými
. Þar er parketlagt með gegnheilu parketi og útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Bílskúr er skráður 28 m² að stærð. Hann er
einangraður
, með steyptu gólfi og vegghillum. Út í hann liggur rafmagn en ekkert rennandi vatn.
Sér geymsla er í kjallara, skráð um 8,2 m² að stærð. Gengið er úr forstofu niður í kjallara.
Annað:- Gólfhiti í forstofu, eldhúsrými og baðherbergi.
- Húsið var málað að utan sumarið 2020 og gert við múr um svipað leyti.
- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir nokkrum árum. Hitakapall var settur í þakrennu árið 2023.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Fyrir framan bílskúr er steypt og hellulagt bílaplan.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.