Lind fasteignasala og Sigrún Ragna lgf. kynna Lönguhlíð 15 bjarta og vel skipulagða talsvert endurnýjaða 3-4 herbergja íbúð Sameiginlegur garður er framan og aftan við húsið, að framanverðu eru barnarólur, og gott leiksvæði fyrir börnin.SÉR INNGANGUR. Gengið inn frá Bólstaðarhlíð. MÖGULEIKI Á STU... Sýna meira
Lind fasteignasala og Sigrún Ragna lgf. kynna Lönguhlíð 15 bjarta og vel skipulagða talsvert endurnýjaða 3-4 herbergja íbúð Sameiginlegur garður er framan og aftan við húsið, að framanverðu eru barnarólur, og gott leiksvæði fyrir börnin.SÉR INNGANGUR. Gengið inn frá Bólstaðarhlíð. MÖGULEIKI Á STUTTUM AFHENDINGARTÍMA.Eignin er skráð 101,4 fm. og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu, sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sín eigin þvottatæki."Upplýsingar Sigrún Ragna sími 7737617 "Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum árin, skipt var um glugga og húsið steinað á árunum 2008-2010. Virkilega vel staðsett eign á eftirsóttum stað í rótgrónu og góðu hverfi í nálægð við skóla, leikskóla, Klambratún í Öskjuhlíð og í göngufæri við miðborgina.Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár, helstu atriði eru eftirfarandi.Búið að leggja nýja ofnalögn og allir ofnar nýlegir.Hiti í gólfi í eldhúsi og forstofu.Árið 2006 - Baðherbergi endurnýjað og skipt um allar hurðarÁrið 2016 - Rafmagnstöflur endurnýjaðarÁrið 2016 - Eldhúsið endurnýjað, Alno innrétting, Asko uppþvottavél,Gorenje ofn og helluborð (helluborð endurnýjað 2024)Árið 2017 - Íbúðin parketlögð með Quick-step harðparketi og raflagnir uppfærðarÁrið 2020 - Baðherbergi endurnýjað.Helstu atriði varðandi framkvæmdir á húsinu:Árið 2006 - Skolp endurnýjað.Árið 2008 - Drenað í kringum húsið.Árið 2010 - Húsið steinað.Árið 2011 - Þak málað.Árið 2018 - Steinunn á húsinu þrifin og yfirfarin.Árið 2023 - Húsið þvegið og sílanboriðFyrirhuguð er viðgerð á þaki í júlí 2024, mun núverandi eigandi bera kostnað af hans hlut í framkvæmdunum.Nánari lýsing:Sér inngangur er inn í íbúðina, komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi, hiti í gólfi. Innaf forstofu er geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús.Hol: Parketlagt tenging við öll herbergi.Stofa: Stofan er parketlögð og með glugga út í garð.Eldhús: Alno innrétting, gorenjo ofn í vinnuhæð,innbyggð uppþvottavél, helluborð og vifta þar fyrir ofan.eldhúsið er mjög bjart og rúmgott með glugga, flísar á gólfi (hiti í gólfi).Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítur fataskápur, parket á gólfi.Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.Bað: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar góð sturtuaðstaða, upphengt salerni, handklæðaofn.Sameiginlegur garður er snyrtilegur, ljósleiðari er í húsinu og er aðkoman að húsinu snyrtileg og gott aðgengi að bílastæðum.