Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fjögurra herbergja einbýlishús þar sem búið er að útbúa auka íbúð í bílskúr að Lágmóa 16 í Njarðvík. Góð staðsetning innarlega í botnlangagötu þar sem stutt er í leikskóla og íþróttamannvirki ss. sundmiðstöð, fótboltahöll og fimleikahús ásamt flestri þjónustu. Alrými eignarinnar er opið og bjart. Stéttar eru hellulagðar og í þeim er hiti. Góð verönd með skjólveggjum.
**Auka íbúð í bílskúr ** Gólfhiti er þar sem flísar eru ** Þak hefur verið yfirfarið og málað ** Neysluvatn hefur verið endurnýjað ** Gler hefur verið endurnýjað að hluta
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Stofa, borðstofa og sjónvarpshol með parketi og flísum á gólfi. Þar er fallegur arin og útgengt á verönd. Eldhús með flísum á gólfi. Góð innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, gas helluborði og háf. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim öllum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að mestu. Þar er ljós innrétting, baðkar og sturtuklefi. Þvottahús með flísum á gólfi. Ljós innrétting með góðu skápaplássi. Bílskúr er innréttaður sem íbúð og er í útleigu. Þar er parket á gólfi í stofu/herbergi, flísar á eldhúsi ásamt ljósri innréttingu. Baðherbergi með flíum á gólfi og veggjum að hluta. Þar er sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél.