LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Um er að ræða virkilega fallega 4ra herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í þessu vinsæla og barngóða hverfi í Norðlingaholtinu í Reykjavík. Nýlega stækkaður og uppgerður pallur úr viðhaldsfríu GOVA plastefni. Eignin var endurnýjuð vorið 2022, gólfefni endurnýjuð, eldhúsi var breytt ásamt geymslunni, smíðuð var þvottahúseining fyrir þvottavél og þurrkara, ofn í forstofu hefur verið endurnýjaður. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, tvær geymslur, eldhús, stofu og borðstofu. Frá stofu er unnt að ganga út pall sem snýr í suður og þaðan út í garð. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði. Virkilega góð staðsetning, innst í botnlanga. Skv. HMS er eignin skráð 124,8 fm og skiptist þannig að íbúðin sjálf er 117,6 fm ásamt 7,2 fm geymslu. Gólfhiti á baðherbergi.
Eignaskiptasamningur: Eignin er 4ra herbergja íbúð á 1. hæð hússins. Íbúðin samanstendur af stofu, eldhúsi, þvottaherbergi, baðherbergi, hjónaherbergi, tveimur barnaherbergjum og anddyri. Auk þessa tilheyrir íbúðinni geymsla merkt: 01-03. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra sem eru undirgangur 01-07 og þakrými 03-01.Eigninni tilheyrir helmingshlutdeild í sorpgeymslu, sem stendur á lóðinni norðan matshlutans. Eigninni tilheyrir sérafnotafletir sem tilgreindir eru á aðaluppdráttum.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í
forstofu með góðum fataskáp. Frá forstofu tekur við gangur.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, stór fataskápur í hjónaherbergi.
Geymsla innan íbúðar með hillum. Flísalagt
þvottahús með innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf gólf, góð innrétting, sér sturta og baðkar, handklæðaofn, gólfhiti á baðherbergi. Af gangi er komið inn í
rúmgott opið rými sem skiptist í
eldhús,
stofu og
borðstofu. Í
eldhúsi er falleg hvít innrétting með granít borðplötu, spanhelluborði, blástursofni og háfi.
Stofan og
borðstofan eru með gólfsíðum gluggum til þriggja átta sem gefur mög góða birtu inn í rýmið. Úr stofu er gengið út á pall með skjólveggjum í suðvesturátt og afgirtan sér garð. Eigninni fylgir einnig sér geymsla við enda bílskúrs efri hæðar.
Gólfefni íbúðar: vínylparket og flísar.
Virkilega falleg eign á mjög vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri frá skóla og leikskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat