Fasteignasalan Garður
Vorum að fá í sölu fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt viðbyggingu sem breytt hefur verið í auka stúdíó íbúð með sérinngangi við Lækjarfit í Garðabæ. Stór og góð lóð til suðurs sem bíður upp á mikla möguleika. Húsið er alls skráð 160,5 fm og þar af er íbúðar rými á hæð 100,3 fm auka íbúðin ásamt geymslu 32,1 fm einnig er þvottahús og geymsla í kjallara skráð 28,1 fm. Skipting eigna: Anddyri, gangur, stofa, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla í kjallara.
Aukaíbúð: Eldhús, stofa/svefnrými og baðherbergi.
Nánari upplýsingar veita:Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.isNánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með fataskáp.
Gangur þar sem er leiðir allar vistaverur hússins saman.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp.
svefnherbergi I: fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: fataskápur og dúkur á gólfi.
Svefnherbergi III: Inn af eldhúsi.
Flísalagt baðherbergi með góðum glugga, walk in sturtu og speglaskáp.
Björt stofa frá gangi en þar er gengið upp fjórar tröppur. Stofan er með aukinni loftæð og glugga til vesturs og suðurs.
Eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og góðum borðkrók
Þvottahús, tæknirými og geymsla er í kjallara. frá eldhúsi er gengt niður í kjallaran einnig er sérinngangur að utan.
Aukaíbúð: Sérinngangur er frá suðurhlið hússins.Anddyri. Eldhús með hvítri innréttingu. Stofa/svefnherbergi. Flísalagt baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og sturtuaðstaða. Hluti af viðbyggingu er nýtt sem geymsla.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í göngufæri við Flataskóla, Garðaskóla, íþróttasvæði Stjörnunnar, Sundlaug Garðabæjar og verslanir. Stutt er út á aðalbraut.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður